Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Blaðsíða 13

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Blaðsíða 13
13 Rauntengsl eða merkingartengsl? fræði í anda Winch og Wittgensteins geti skapað hollt mótvægi gegn misskilinni hlutlægni megindlegra spurningalista- kannana og ofurhuglægni eigindlegra við- tala. Við útfærum þá hugmynd í kaflanum „Millileið merkingar“. En svo að notast sé við wittgensteinskt orðalag þá er besta leiðin til að rökstyðja slíkt ekki að segja það heldur sýna. Því verður í framhaldi þess kafla skipt um gír í greininni og tekið til við hugleiðingar í anda og stíl Wittgen- steins um viðfangsefnið „þáttur náms- hvatar og sjálfsaga í eðli og stöðu náms í tilveru nemenda á unglinga- og fram- haldsskólaaldri á Íslandi“. Hvers vegna virðast sumir – við fyrstu sýn – hafa „eðlis- læga hvöt til að læra“, aðrir að „beita sig hörðu til að læra“ í trássi við hvöt sína til hins gagnstæða og enn aðrir að „heykjast á lærdómi“ yfirhöfuð? Hvaða rauntengsl eða merkingartengsl eru þarna að verki – og hvers vegna hafa fræðimenn einblínt á hin fyrrnefndu? Fyrsta atlaga okkar að þessari spurningu er að velta fyrir okkur „hvað fái börn til að læra“ (í samnefndum kafla). Í kjölfarið fylgja tveir kaflar sem reifa efasemdir um rauneðli hugtakanna námshvöt og sjálfsagi. Greininni lýkur svo með almennum lærdómi sem draga má af undanfarandi umræðu. Afarkostir Við rannsókn á stöðu náms í reynsluheimi íslenskra unglinga, af sjónarhóli hugtak- anna námshvöt og sjálfsagi, vaknaði að sjálfsögðu hin klassíska spurning (í ferm- ingarveislum og á kennarastofum) hvort til stæði að rannsaka þetta út frá megind- legum eða eigindlegum forsendum. Kostir og gallar hvorrar aðferðafræði um sig eru margræddir og verður ekki vegið frekar í þann knérunn hér nema til að benda á nokkur atriði er varða menntunarfræði sér- staklega, enda rannsóknin unnin innan vé- banda þeirra fræða. Í megind legum mennt- unarfræðirannsóknum er einatt leitað eftir hlutlægum rauntengslum, settum fram með tölfræðilegum hætti, milli tveggja eða fleiri breyta, þar sem ein breytan varðar til að mynda viðhorf, forsendur, stöðu, þekkingu og svo framvegis tiltekins aðila á menntavettvangi (kennara, nemanda, foreldris) – og/eða tiltekin inngrip í þessi atriði – en önnur einhvern mælanlegan afrakstur, svo sem próf, námsárangur eða jákvætt/neikvætt félagslegt atferli. Upp- haflega hugmyndin með megindlegum aðferðum í félagsvísindum var vitaskuld sú að endurspegla hina árangursríku að- ferðafræði náttúruvísinda: skapa nokkurs konar eðlisfræði mannlífsins. Vandinn við þessa hugmynd er þó sá að í náttúru- vísindum er ekki einungis leitað eftir töl- fræðilegu raunsambandi heldur lögmáls- bundnum skýringum. Eðlisfræðingnum nægir ekki að vita að loftþrýstingur standi í öfugu sambandi við rúmmál fyrr en hann skilur hvers vegna. Í menntunarfræðum og öðrum félagsvísindum er hins vegar sjaldnast hægt að ganga að slíkum lög- málum vísum; rannsakandinn situr oftast ekki uppi með annað en mismikla fylgni milli breyta án þess að hægt sé að skera úr um orsakasamband. Jafnvel þegar slíkt samband virðist blasa við af niðurstöðun- um eru orsakaskýringar í félagsvísindum sjaldnast ceteris-paribus skýringar, um að A orsaki B „að öllu öðru jöfnu“, heldur að A hafi reynst orsaka B í til dæmis um það bil
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.