Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Page 100

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Page 100
99 er, eins og Basil, fullur af erótískri aðdáun sem vex fremur en minnkar eftir því sem líður á bókina.48 Halldór og Ómar sækja í að hittast án Bóasar og milli þeirra þróast samband sem er ekki augljóslega kynferðislegt en undir niðri kraumar þó eitthvað annað og meira. Halldór er mjög upptekinn af því að Ómar sé skáld og dáist mjög að honum sökum þess. Ein erótískasta sena bókarinnar snýst einnig að miklu leyti um bækur og skáldskap en um er að ræða fyrsta skiptið sem Ómar býður Halldóri heim til sín og enn fremur fyrsta skiptið sem þeir ræða þá staðreynd að Ómar er skáld. Uppi í stofu Ómars er Halldór upprifinn yfir mikilfengleik hins glæsilega einbýlishúss sem Ómar býr í en Halldór hefur aldrei stigið fæti inn í slík húsakynni fyrr. Ómar býður síðan vini sínum upp á niðursoðna ávexti með rjóma en slíkt lostæti hefur hinn fátæki lands- byggðardrengur heldur aldrei smakkað. Á meðan þeir sitja og borða ávexti ræða þeir um skáldskap og Ómar leyfir Halldóri að handfjatla bækur: Og hann rís á fætur úr hægindastólnum, gengur að bókaskáp sínum, en Halldór stendur upp. Þarna er mikill fjöldi bóka, svo mikill fjöldi að Halldór hefur aldrei séð annað eins í einni stofu. Ómar Dúason tekur hurðirnar frá hillunum, setur nokkrar bækur á smáborðið, býður Halldóri að skoða það sem hann vilji helzt. Halldór hefur aldrei snert við svo dýrlegum hlutum og vel frá gengnum, og honum finnst varla að hann sé þess verður að snerta á þeim. – Ef þú vilt máttu fá einhverjar að láni, segir Ómar. (160) Með þessum orðum lýkur kaflanum og á næstu síðu vaknar Halldór dag- inn eftir og finnur „enn í munni sér ljúffengt bragðið af ávöxtunum sem hann borðaði í stofu skáldsins. Hann rís á fætur sem nýr maður, ákveður að fara í skólann, greiðir hár sitt sem hann sjaldan gerir ...“ (161). Hann er óvenju glaður og sjálfsöruggur og finnur jafnvel annað bragð af kaffinu en venjulega: „Bragðið eftir heitt kaffið vekur þægilega endurminninguna um gott bragð af nýstárlegum ávöxtum og öðrum sætindum, sem vinur 48 Höfundur þakkar Jóni Karli Helgasyni fyrir að benda á líkindin með Man eg þig löngum og Myndinni af Dorian Gray. Kvikmyndin The Picture of Dorian Gray, í leikstjórn Alberts Lewins, kom út árið 1945 og var sýnd í íslenskum kvikmynda- húsum árið 1947. Elías hefur eflaust þekkt til bókar Wilde og ljóst er að hann sá kvikmyndina áður en Man eg þig löngum kom út, nánar til tekið 7. nóvember 1947. Sjá Lbs. NF – CB, Elías Mar, skjala- og handritasafn, minnisbækur, hljóðsnældur og laus blöð, askja 1, minnisbók 1947. KYN(NGI)MÁTTUR SKÁLDSKAPARINS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.