Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Page 138
137
vera „barn kærleikans“ (8) og sagt er frá því að „Rósa hafi haft ákveðnu
hlutverki að gegna og þyrfti þess vegna að sinna af alúð þeirri náttúru
sem bæði nafnið og lífið kröfðu hana um“ (8). Þó hlutverk hennar sé ekki
útlistað sérstaklega má vel gera sér í hugarlund að Lenni sjái dóttur sína
að einhverju leyti fyrir sér í hlutverki nöfnu hennar. Í huga hans er Rósa
eldri holdgervingur ástarinnar og hin fullkomna kona en í krafti ímynd-
unaraflsins hefur hann eignað henni ýmsa kosti og eiginleika sem honum
finnast eftirsóknarverðir. Dóttir hans elst upp við þessa dýrkun og reynir
því í sífellu að standa undir nafni og væntingum fólksins í kringum hana,
þó sér í lagi Lenna, með því að „gæða líf sitt mjúkri og einfaldri birtu“ (9)
og vera „alltaf góð manneskja“ (9).
Þegar Lenni er farinn út í heim fær Rósa stopular fréttir af honum á
póstkortum sem hann sendir henni. Hann skrifar henni gjarnan að hann
sakni hennar en segir henni einnig frá lífi sínu og leitinni að Rósu Cordovu.
Póstkortin orka eins og stökkpallar fyrir dagdrauma Rósu því hún ímynd-
ar sér líf Lenna, fólkið sem hann umgengst, umhverfið sem hann dvelst
í, þanka hans og þrár. Í kaflanum „Kortalíf“ er gerð grein fyrir blöndun
á dagdraumum Rósu og póstkortum Lenna en þar má greina augljósan
samruna Rósanna. Í kaflanum segir:
Þau [trén] lutu höfði og Lenni fann greinarnar anda þegar hann gekk
fram hjá þeim. Í eitt skiptið felldi eitt þeirra rós á gangstéttina við
fætur hans. Það var táknrænt fannst honum og henni [Rósu] fannst
það líka. Rósin við fætur hans var táknið hennar Rósu Cordovu um
leið og það var blóm dóttur hans. Já, allt fannst honum reyndar
táknrænt fyrir líf þeirra tveggja. Og í raun vissi hann ekki hvorrar
hann saknaði sárar. En allt var honum sem sé táknrænt, rósavönd-
urinn í fangi blökkukonunnar á kortinu frá Kayenta, grannir fingur
gömlu konunnar með bognu neglurnar á kortinu frá Casa Grande,
rauðar varir stúlkunnar frá Shiprock. Alls staðar var eitthvað sem
minnti hann á þær og þá kannski sýnu meira á Rósu Cordovu af því
þetta var auðvitað hennar land. (40; leturbr. mín)
Allt sem er talið upp og á að vera táknrænt fyrir Rósurnar tvær eru atriði
sem ríma við lýsinguna á myndinni af Rósu Cordovu; en þar er meðal ann-
ars lögð sérstök áhersla á rósavönd í fangi hennar, granna fingur og rauðar
varir.45 Greinilegt er því að Lenni er búinn að yfirfæra þessi fyrirbæri á
45 Sjá vigdís Grímsdóttir, Frá ljósi til ljóss, bls. 11.
„EINS OG ÆvINTÝRI“