Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Page 139
138
Rósu dóttur sína. Hún er sífellt í huga hans og þó reynt sé með endurtekn-
ingunni á orðinu ,táknrænt‘ að gera tilraun til að skapa stóra sögu um ást
Lenna, líf og örlög er ljóst að ástin sem kvelur hann er ekki ástin á Rósu
Cordovu heldur ástin sem hann hefur á dóttur sinni.
Þegar Lenni hefur verið átta ár í ferðalaginu sendir hann dóttur sinni
bréf og segir henni frá lífi sínu og leitinni síðustu árin. Bréfið hefst á þess-
um orðum: „Elsku Rósa mín litla, eða Rósíta einsog ég mundi segja við
þig ef þú værir hérna hjá mér. Rósíta. Hversu oft hef ég ekki hvíslað nafnið
þitt?“ (140) Í bréfinu ávarpar Lenni Rósu alls 27 sinnum með því að kalla
hana Rósítu.46 Nafnið Rósíta hljómar líkt og frægt nafn úr bókmennta-
sögunni; Lolita. Hljómtengslin með nöfnunum, endurtekningin á nafninu
Rósíta í bréfinu og sú staðreynd að það skuli vera Lenni sjálfur sem kallar
Rósu þessu nafni ýta undir að lesendur sjái Rósu fyrir sér í hlutverki Lolitu;
stúlkunnar sem á fósturföður sem er heltekinn af henni.47 Textatengslin við
skáldsöguna Lolitu eru margþætt. Fyrir það fyrsta speglar samband Rósu
og Róberts samband Lolitu og Humberts því þegar samband þeirra hefst
vita persónur og lesendur ekki betur en að Róbert sé fósturfaðir Rósu. Í
skáldsögunni Lolitu reynir sögumaðurinn, Humbert, að stýra lestri lesenda
þannig að þeim finnist Lolita vera sú sem tælir hann. Svipuð stýring er í
Frá ljósi til ljóss þegar samband Rósu og Róberts á í hlut. Lesendur fá að
skyggnast inn í huga Rósu en ást hennar á Róbert er opinberuð þegar hún
er enn barn að aldri bæði út frá hugsunum hennar og samræðum við aðrar
persónur. Þar með er ýtt undir að lesendum finnist sem Rósa hafi allt frá
æsku haft augastað á Róbert. Tengslin við Lolitu koma einnig fram þegar
ljóst er að Lenni er ekki líffræðilegur faðir Rósu heldur fósturfaðir hennar
en þá rímar ást hans á henni við ást Humberts á Lolitu. Orð Lenna í upp-
hafi bréfsins hér að ofan, það er að hann myndi kalla Rósu Rósítu væri hún
hjá honum, eru líka enn ein vísbendingin um að ef þau væru í návist hvors
annars gæti hann þráð að samband þeirra væri af öðru tagi en samband
milli feðgina er alla jafna.
Sifjaspellsminnið birtist einnig í því að dætur taka endurtekið að sér
hlutverk mæðra sinna. Ekki er nóg með að Rósa giftist fósturpabba sínum
sem er raunverulegur faðir hennar heldur kýs Lenni að taka saman við
Floru, dóttur Rósu Cordovu. Róbert og Lenni eiga það sameiginlegt að
46 Sjá sama rit, bls. 140–184.
47 Sjá vladimir Nabokov, Lolita, þýðandi Árni Óskarsson, Reykjavík: Dimma, 2014.
Tekið skal fram að orðalagið „heltekinn af“ er hér fremur valið með hliðsjón af
Lenna en Humbert.
GuðRún stEinÞóRsdóttiR