Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Page 161

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Page 161
160 svavaR HRafn svavaRsson Æskýlos lætur nægja að vísa til hefðbundins hlutverks nornanna sem hefnenda Hadesar, jafnvel fyrir handan.41 Orð Pindars eru annars konar. vísanir hans til handandóma hafa rétti- lega verið teknar til marks um að hugmynd Grikkjanna um psykhē hafi þá breyst mikið frá tíma Hómerskviða.42 Eftirfarandi línur úr annarri ólymp- ísku drápunni eru frægar; hún var samin handa Þeróni eftir sigur hans í kerrukappreiðum árið 476 (56–80): Hafi maður auð og viti það sem koma skal, að hjálparlausum öndum þeirra sem hér hafa dáið er umsvifalaust refsað – og fyrir syndir sem framdar eru hér í ríki Seifs fellir dómarinn neðra dóm sinn af heift- rækinni nauðsyn. En ávallt njóta hinir góðu sólar jöfnum nóttum og jöfnum dögum og fá auðveldara líf, því þeir trufla ekki jörðina með styrk handa sinna eða vatn sjávarins til að draga fram lífið, heldur ala aldur sinn óþjáðan hjá hinum heiðruðu guðum þeir menn sem héldu eiða sína, en hinir þola ólýsanlegar píslir. En þeir sem höfðu kjark til að lifa þrisvar43 í hvorri vist og halda sál sinni fjarri öllu ranglæti fara braut Seifs til stöpuls Krónoss. Þar blása sjávarvindar um eyju hinna sælu, gullblómin skína, sum af landi frá geislandi trjám, önnur nærir vatnið. Af þeim vefa þeir hringi fyrir hendur sínar og sveiga fyrir höfuð sín að réttlátum ráðum Hradamanþyss, sem hinn mikli faðir [Krónos] hefur ætíð sér við hlið, eiginmaður Hreu, er hefur hæsta hásæti allra. Bæði Peleifur og Kadmos teljast til þeirra, sem og Akkilles, sem móðir hans kom með, þegar hún hafði sannfært hjarta Seifs með bænum sínum.44 41 Þetta eru (held ég) einu tilvísanirnar til þess að refsinornir hefni fyrir handan. En vitaskuld vísar Æskýlos til þeirra í öðru samhengi; hann tengir þær Bakkos- arvígslum (Hollvættir 500; sbr. Sjö gegn Þebu 699–700), rétt eins og Evripídes (Orestes 337–38, 411; Fönikíumeyjar 1489–1503; Hekúba 684–87); sjá S.I. Jo- hnston, Restless Dead: Encounters Between the Living and the Dead in Ancient Greece, Berkeley: University of California Press, 1999, bls. 251–58. Líkast til dúkka refsi- nornirnar einnig upp í Derveni-papýrusnum, þótt erfitt sé að greina hlutverk þeirra í þeirri orfeifsku frásögn; sjá G. Betegh, The Derveni Papyrus: Cosmology, Theology and Interpretation, Cambridge: Cambridge University Press, 2004, bls. 89–91. 42 Sjá Clarke, Flesh, bls. 283–319; A.A. Long, Greek Models of Mind and Self, Cam- bridge, Mass.: Harvard University Press, 2015, bls. 70–76. 43 Í lýsingu sinni á örlögum sálna í Fædrosi minnist Platon (249a) á hrekklausa og réttláta heimspekinga sem öðlast æðsta hnossið eftir þrjú árþúsund. Empedókles minnist á útlegð dæmonsins sem varði 30 þúsund árstíðir (DK B115.6). 44 Í útfararkvæði (broti 129) virðist Pindar lýsa tómstundum hinna brottkvöddu eðalmenna þegar hann vísar til skóglendis og segir að „sumir njóti útreiða og æf-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.