Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 13

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 13
A ð h a fa t i l f i n n i n g u f y r i r n á t t ú r u n n i í v í s i n d u m TMM 2014 · 2 13 Samband vísindamanns við náttúruna Og með því að iðka heildstæða hugsun í dagsins önn og í öllum okkar athöfnum tökum við ákvarðanir sem eru vandaðri en áður og byggjast ekki aðeins á þekkingarbrotum heldur djúpstæðri hugsun þar sem innsæi, tilfinning og siðferði fær sess […] vísindin [eru] leiðarstef í hinni miklu hljómkviðu Jarðar (GPÓ).2 Ef við sjáum fyrir okkur veruleika mannsins sem þokkalega vel skilgreindan heim félagslífs, tungumáls og samskiptareglna, sem hefur fundið sér stað í hinum stóra veruleika náttúrunnar3, má segja að staður vísindamannsins liggi á mörkum veruleika mannsins og þar sem óræð náttúran tekur við. Sú staðsetning vísindamannsins felur því í sér talsvert óöryggi, en er jafn- framt spennandi vettvangur tengsla við hið óþekkta sem og þróun leiða til að kynnast því og skilja. Starfsemi vísinda má lýsa sem ferli uppgötvana í krafti skynjunar, til- finninga, hugsunar, úrvinnslu og framsetningar eða túlkunar í orðum og kenningum – með það að markmiði að bæta lífið og menninguna. Þetta er ótrúlega víðtækur ferill sem í sínu einfaldasta formi byrjar á því að gera sér einhvers konar mynd af viðfangsefninu4 og skapa tengsl við það. Því næst tekur við ákveðinn þroski sambandsins sem felur oft í sér rannsókn með skipulögðum spurningum og tilgátum. Ef vel gengur er náð vissum loka- áfanga þegar tekist hefur að skapa nýja þekkingu og koma henni á fram- færi í orðum eða myndum sem fólk getur skilið og nýtt sér á einhvern hátt. Umfram allt verður samband vísindamanns við viðfangsefnið að vera náið á öllum stigum þessa ferils. Þess vegna getur það falið í sér djúpar tilfinningar og því má halda fram að þær séu forsenda vísindalegs árangurs. Einfaldasta dæmið um birtingarmynd slíkra tilfinninga er að undrast – að vera forvitinn – og kynda þannig undir áhuganum á viðfangsefninu. Í upphafi sambands vísindamanns við viðfangsefni sitt er undrunin lykilatriði því hún laðar fram þau gildi sem felast í því að mynda þessi tengsl og þroska þau frekar. Sá þroski leiðir svo til sköpunar og enn frekari skilnings á þeim gildum sem viðfangsefnið og tengslin við það fela í sér. Miðlun vísindamannsins á reynslu sinni og uppgötvunum til samfélagsins felur í sér ákveðna form- bindingu þeirra gilda sem hann hefur laðað fram með vinnu sinni, þau verða að skilgreindum verðmætum í mynd þekkingar eða afurða hennar. Á þessu stigi er ánægjutilfinning vísindamannsins í fyrirrúmi, og hann nýtur þeirrar virðingar sem verk hans veita honum. Áður en lengra er haldið skulum við staldra við og skoða hvað það er sem umfram allt annað greinir vísindalega starfsemi frá annarri viðleitni til að skilja veröldina. Það sem hér um ræðir er sú viðleitni vísinda að beita ætíð gagnrýninni hugsun, að sannreyna hugmyndir og tilgátur með einhverjum hætti, og setja aldrei fram niðurstöður nema allt bendi til að þær gefi rétta mynd af viðfangsefninu, en gera jafnframt skýra grein fyrir öllum fyrir-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.