Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Blaðsíða 20
20 TMM 2014 · 2
Unnur Birna Karlsdóttir
Málsvari náttúrunnar
Um náttúruverndarhugmyndir
Guðmundar Páls Ólafssonar
Bókin stóra til varnar hálendinu
Bók Guðmundar Páls Ólafssonar (1941–2012), Hálendið í náttúru Íslands
kom út árið 2000 eða fyrir fjórtán árum síðan.1 Ritið, sem skilgreint var
sem fræðirit fyrir almenning, stendur enn upp úr eftir allan þennan tíma
sem eitt glæsilegasta og efnisríkasta ritið um hálendi landsins, enda hafði
hann á valdi sínu þá marghliða færni og djúpu næmni og virðingu gagn-
vart viðfangsefninu sem höfundur þarf að búa yfir til að geta skapað slíkt
stórvirki sem bókin er. Störf hans, fjölþætt menntun, færni og lífssýn skína
í gegn í verkinu, en þar er á ferðinni líffræðingurinn, rithöfundurinn, ljós-
myndarinn, náttúruunnandinn og náttúruverndarsinninn. Þetta gerði
honum kleyft að skapa frásögn í lifandi texta og vönduðum ljósmyndum
með svo áhrifaríkum hætti að hún opnar einstaka innsýn í margbrotna
hálendisveröld Íslands. Hann fræðir lesandann um hið smæsta í hálendis-
náttúrunni til hins stærsta, um fast og fljótandi, lifandi og dautt, kalt og
heitt og allt þar á milli. verk hans fjallar um hálendið út frá náttúrufari
og náttúrugæðum, um náttúruöflin sem sífellt eru að verki við að skapa
og móta landið, ekki aðeins ofan við hálendislínu heldur ná áhrif þeirra
sköpunarkrafta líka niður láglendið, að ströndum og allt í sjó fram og auka
með því auðlegð láglendis og sjávar. Hann vekur athygli á þessu heildar-
samspili náttúrunnar í gagnrýni sinni á þeirri virkjunarstefnu sem réði þá
för, með tilheyrandi áformum um að stífla stærstu jökulár landsins. Hann
benti á að árnar væru lífæð lands og sjávar. Ef straumur þeirra er rofinn
þá slitnar sú æð. Hann dró þannig fram í virkjanaumræðuna það atriði
sem lítið sem ekkert hafði verið haldið á lofti áður, þ.e. hversu lítið er vitað
um og rannsakað hversu mikilvægur þáttur hálendið sé í heildarvistkerfi
Íslands, bæði fyrir landið og landgrunnið umhverfis það. Hann kannaði því
ekki aðeins allt hálendið frá ólíkum sjónarhornum heldur velti upp ýmsum
stórum umhverfispólitískum spurningum, þar á meðal þeirri sem snertir
grundvallarhagsmuni Íslendinga, þ.e. hvort langtímaáhrif virkjana séu m.a.