Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Blaðsíða 140

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Blaðsíða 140
D ó m a r u m b æ k u r 140 TMM 2014 · 2 erfiður og fyrir kemur að hún dansar á brún hyldýpisins í þunglyndi og drykkju. Þá sendir hún Dísu af stað út í lífið en skríður sjálf undir sæng. Fyrir umheiminum birtist þetta svo sem yfir- gengilegt mislyndi og dyntir. Þótt margt sé óleyst við sögulok og vopnaglamur heyrist enn er óhætt að fullyrða að djúp- stæð þrá eftir friði milli Dísu og Gríms eða í það minnsta vopnahléi sé undir- liggjandi alla bókina og jafnvel í seiling- arfjarlægð á síðustu blaðsíðunum. En það eru hin sífelldu átök milli Gríms og Dísu sem gera Dísusögu á köflum erfiða aflestrar. Þau eru magn- þrungin og skera oft inn að beini en á stöku stað ber dálítið á endurtekningum og frá fagurfræðilegu sjónarhorni hefði verið þakklátt að stytta þau. Auðvitað má segja að fagurfræði sé ekki allt og þegar upp er staðið þjónar endurtekn- ingin vissulega tilgangi, enda kunnug- legt stef hjá vigdísi – hún er erfið en hún hefur áhrif þar sem hún vísar í ævi- langa baráttu raddanna – kannski er bókin hrárri og sterkari fyrir vikið. En mögulega hefði verið hægt að ná hvoru tveggja fram, fegurð og áhrifamætti. Dísa segir reyndar sjálf og það oftar en einu sinni að hún ætli ekki að ritskoða neitt né endurskrifa heldur láta textann halda sér eins og hann kemur frá henni. Auðvitað er varhugavert að taka öll orð hennar bókstaflega en það má staldra við ástæðuna fyrir þessari reglu – hún vill ekki ritskoða og pússa textann af því hún ætlar að reyna að losna undan kækjum skáldkonunnar Gríms. Hér gerir höfundur sem sagt tilraun til að komast undan sínum eigin hefðum og venjum sem og hinni hefðbundnu skáldsögu. Dísa gerir meira að segja að umtalsefni hina kvenlegu bókmennta- hefð sem einkennist af smáatriðalýsing- um og löngum forleik að hvörfum sög- unnar (bls. 193). Kannski er þetta með- vituð uppreisn gegn hefðinni, fagur- fræðinni og forminu? Gríms gagnrýnir nefnilega ekki bara efni og efnistök Dísu heldur ekki síður form hennar og upp- setningu sem flæðir óheft. Ytri rammi bókarinnar er raunar gamalgróinn – sagan er í formi sendi- bréfs og bréfið stílað til elskhugans kisa sem Gríms lofaði nafnleynd fyrir mörg- um áratugum. Skáldsaga í bréfum er kunnuglegt form sem þykir gjarnan gæða textann ákveðnum sannfæringar- krafti og raunsæi. En um leið skortir hið alsjáandi auga sögumannsins, sjónar- hornið er takmarkað og lesandinn ofur- seldur bréfritara hvað varðar allt sann- leiksgildi. Það er þarna sem höfundur- inn bregður á leik – sérstaklega þar sem Dísa og Gríms grípa iðulega fram í fyrir hvor annarri og draga í efa frásögn hinnar. Skáldaleyfið sem Dísa tekur sér er undirstrikað – til dæmis þegar hún í öðrum kafla situr skrifandi við gluggann á kaffihúsinu á Norðurfirði og sér kisa koma með flugi að sunnan. Það er sumar í þeirri mynd sem hún dregur upp og einn heimamanna nýkominn af veiðum. En sem þeir kisi taka tal saman og heimamaður bendir honum á nátt- úrufegurðina allt um kring fer að snjóa og fjallahringurinn er snæviþakinn og ægifagur. Hér grípur Gríms inn í frá- sögnina enda ofbýður henni hvernig myndir Dísu stangast á: „Það er lágmark að þú ruglir ekki saman vetri og vori, talir ekki um vetrarmyndir og sumar- veiðar í sömu andránni. Þú verður að gá að raunsönnu samhengi hlutanna ef þú ætlar að búa þér til einhverja eðlilega sérstöðu.“ (bls. 51) Hér má staldra við kröfuna um „eðlilega sérstöðu“ – það er sum sé nauðsynlegt að marka sér sér- stöðu en hún verður að falla innan ákveðins ramma, hún verður að vera eðlileg. En Dísa lætur sér fátt um finnast – þetta er hennar frásögn sem lýtur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.