Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Blaðsíða 77

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Blaðsíða 77
S t r í ð s m a ð u r o g f r i ð a r h ö f ð i n g i TMM 2014 · 2 77 Afríska þjóðarráðið og fleiri samtök sem höfðu verið bönnuð yrði aflétt, að pólitískir fangar yrðu látnir lausir, dauðarefsing afnumin og ýmsum ákvæðum neyðarástandsins aflétt. „It was a breathtaking moment,“ segir Mandela í endurminningunum. De Klerk lauk ræðu sinni á að segja að nú væri stund samninganna runnin upp.7 Þetta sama ár var Nelson Mandela látinn laus úr fangelsi. Eftirleikinn þekkjum við og þar reyndi á Nelson Mandela, ekki síst í því að halda sínum eigin mönnum í skefjum og fá þá til að fallast á samninga- leiðina. Óeirðir og ofbeldi blossuðu upp hér og þar í landinu meðan á við- ræðunum stóð, ekki síst í KwaZulu-Natal þar sem Inkhata hreyfingin var sterk. Slíkt gat auðveldlega siglt samningunum í strand, enda kærðu ýmsir sig ekki um samningaleiðina og vildu nota ólguna í landinu til að ganga milli bols og höfuðs á óvininum. Fréttaskýrandinn Fergal Keane segist hafa hlustað á Mandela á þessum tíma halda ræðu í einu þeirra úthverfa, eða „townships“, þar sem blökkumönnum var gert að búa og þar sem margir höfðu þegar verið drepnir í átökum milli stríðandi andspyrnufylkinga. Hann segir að Mandela hafi sagt: við verðum að horfast í augu við sann- leikann, við erum sjálf jafn sek og aðrir í því að drepa okkar eigið fólk. Frelsið munum við aldrei öðlast með því að drepa saklaust fólk – eða orðrétt – við getum ekki notað lík saklauss fólks til að klifra til frelsis.8 Keane segir að Mandela hafi vitað að fólk vildi ekki hlusta á orð af þessu tagi en að hann hafi líka vitað að hlustað yrði á sig. Þar kemur til sögunnar áhrifamáttur táknsins sem Mandela var orðinn og það var í þágu friðsamlegra lausna sem hann notaði áhrifamátt sinn. Stríðsmaðurinn Rolihlahla, sá sem rífur greinar af trjánum, var orðinn að friðarhöfðingja, að Dalibunga, föður þjóðar sinnar, þeim sem hefur vitið. Ofbeldið var landlægt, einnig meðal hvítra kynþáttasinna og öfgamanna hvers konar og óvíst var í byrjun hvort hægt yrði að tryggja samvinnu við herinn. En saman tókst Mandela og de Klerk að sigla fram hjá þeim mörgu skerjum sem samningaviðræðurnar gátu steytt á, halda ofbeldinu í skefjum og semja um að ein lög skyldu gilda fyrir alla. Þeir sömdu meðal annars um að allir fengju kosningarétt og hann jafnan, einn maður, eitt atkvæði. Það eitt þýddi að þar sem blökkumenn voru í yfirgnæfandi meirihluta í landinu myndu þeir ráða úrslitum allra kosninga. Reyndur diplómati sem starfaði í Suður-Afríku á þessum árum, sagði mér að sennilega hefði de Klerk ekki ætlað að ganga svona langt í jafnræðisátt, en þegar hér var komið málum var einfaldlega orðið of seint að snúa við. Fleiri viðmælendur mínir staðfestu það. Saman fengu þeir Mandela og de Klerk Friðarverðlaun Nóbels árið 1993. Fyrstu frjálsu kosningarnar í landinu fóru fram í apríl 1994 og tóku fjóra daga. Mandela segir í endurminningum sínum að þegar hann fór á kjörstað hafi sér verið efst í huga allt það fólk sem fórnað hafði lífi sínu fyrir þann málstað sem nú var í höfn. Hann segir einnig að hann muni aldrei gleyma hinum löngu biðröðum fyrir utan kjörstaði, fólkinu sem beið þolinmótt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.