Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 72

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 72
72 TMM 2014 · 2 Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Stríðsmaður og friðarhöfðingi Nelson Mandela1 Nelson Mandela var maður mótsagna; hann var bæði friðarhöfðingi og stríðsmaður, aðalsmaður sem barðist fyrir þá sem minna máttu sín og starf- andi lögfræðingur sem hafði ekki fullgilt lögfræðipróf fyrr en árið 1989, þegar hann lauk loks prófinu í fangelsinu á Robin-eyju. Hann var sjarmör sem gat heillað upp úr skónum, ekki síst konur, en hann gat líka verið fjar- lægur og óaðgengilegur. Ef til vill var það vegna mótsagnanna sem í honum rúmuðust að hann gat leikið mörg ólík hlutverk á langri ævi og aðlagað sig að breytilegum aðstæðum. Að tákni varð hann rétt eins og Martin Lúter King og Mahatma Ghandi sem reyndar byrjaði pólitískan feril sinn í Suður- Afríku. Ég hitti Nelson Mandela aldrei á árum mínum í Suður-Afríku, hann hafði þá dregið sig í hlé frá opinberu lífi og var orðinn heilsuveill.2 En ég hitti og ræddi við ýmsa sem þekktu hann náið, eins og Desmond Tutu erkibispup og Thabo Mbeki, sem þá var forseti Suður-Afríku, hafði verið varaforseti við hlið Mandela og starfað með honum árum saman. Af samtölum við þessa menn og fleiri réð ég að mönnum fannst óþarfi hvernig Mandela einn hefði orðið að tákni fyrir baráttuna gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku; hann hefði engan veginn verið einn að verki, þetta var fjölda- barátta og margir verið kallaðir til forystu. Þannig er það ævinlega í mann- réttindabaráttu af öllu tagi og reyndar benti Mandela iðulega á það sjálfur að hann hefði aðeins verið einn af mörgum. Meðal annarra forystumanna má nefna Oliver Tambo (sem flugvöllurinn í Jóhannesarborg er nú kenndur við) og Walter Sisulu, sem reyndar mun hafa kveikt baráttueldinn í brjósti Mandela. Dóttur Walter Sisulu, Beryl Sisulu, kynntist ég vel á tíð minni í Noregi, en hún var þá sendiherra Suður-Afríku þar í landi. Ræddum við þessi mál gjarnan á vetrarkvöldum í snjónum í Osló. Okkur mönnunum er tamt að tákngera það sem skiptir okkur máli; táknin hjálpa okkur við að aðgreina það sem okkur finnst mikilvægt frá „öllu hinu“. Þau eru um leið nokkurs konar hraðritunaraðferð í samskiptum okkar því þau segja mikið án þess að útskýringar þurfi, það er með öðrum orðum hentugt að hugsa með þeim.3 Slíkt tákn varð Nelson Mandela. Árin 27 í fangelsi hjálpuðu til. Myndin af fanganum á Robin-eyju að höggva grjót undir ómannúðlegri stjórn fangavarða varð að sínu leyti að tákni sem sagði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.