Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Blaðsíða 78
S i g r í ð u r D ú n a K r i s t m u n d s d ó t t i r
78 TMM 2014 · 2
tímunum saman eftir að fá að greiða atkvæði – í fyrsta sinn í lífinu – eins og
hann sjálfur. Andrúmsloftið var þrungið bjartsýni og gleði, segir hann, við
vorum eins og endurfædd þjóð.9
Eins og við var búist hlaut Afríska þjóðarráðið meirihluta atkvæða í
kosningunum eða 62,6%, en samt heldur minna en þurfti til að flokkurinn
gæti einn sett landinu nýja stjórnarskrá. Ekki voru allir liðsmenn þjóðar-
ráðsins ánægðir með það. Mandela segist hins vegar hafa verið feginn, fleiri
þyrftu að koma að gerð grunnlaganna en meirihlutinn því annars yrði
stjórnarskráin talin stjórnarskrá Afríska þjóðarráðsins en ekki þjóðarinnar.
Þegar búið var að telja upp úr kjörkössunum og ljóst varð að Mandela yrði
fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Suður-Afríku segist hann hafa hugsað mest
um það að næstu árin yrði það hlutverk sitt að græða sár þjóðar sinnar, efla
traust milli manna, ekki síst kynþátta, og koma á sáttum á milli einstaklinga
og hópa eftir allar þær skelfingar sem dunið höfðu yfir fólk.10 Hann stóð við
það og er sannleiks- og sáttanefndin, sem hann kom á fót og vinur hans Des-
mond Tutu fór fyrir, einhver órækasti vitnisburðurinn um það. Regnboga-
þjóðin, þjóð hinna mörgu kynþátta og ólíkra menningarhefða, var að fæðast
og til þess þurfti sátt og gagnkvæma virðingu manna á milli.
Þessi sátt er undirstrikuð í þjóðsöng Suður-Afríku, sem lögfestur var í tíð
Mandela sem forseta, eða árið 1997. Söngurinn er settur saman úr lof söngv-
um á þeim fimm tungumálum sem töluð eru af flestum í Suður-Afríku;
xhosa (móðurmáli Mandela), Zulu, Sesotho, Afrikaans (máli Búanna) og
ensku, en það tungumál er lingua franca Suður-Afríku. Í söngnum er guð
beðinn um að blessa Suður-Afríku og varðveita börn hennar gegn öllum
átökum. Hann er beðinn um að láta sameiningarkallið hljóma frá bláma
himinsins, djúpi hafsins og gljúfrum fjallanna og gefa þjóðinni dug til að
varðveita frelsið í „landinu okkar, Suður-Afríku“.11 Þessi söngur, sem hljómar
við öll tækifæri í Suður-Afríku, birtir í hnotskurn sýn Mandela á hina nýju
Suður-Afríku og það sem hann vildi gefa þjóð sinni með lífi sínu og starfi.
Heimildir sem vitnað er til:
Keane, F. 2013. „Obituary: Nelson Mandela“. BBC News, Africa.
Lévi Strauss, C. 1963. Totemism. Penguin Books.
Nelson Mandela 1994. Long Walk to Freedom. The Autobiograprhy of Nelson Mandela. Little,
Brown and Company.
Þjóðsöngur Suður-Afríku.
Samtöl höfundar við fólk í Suður-Afríku og víðar um efni þessarar greinar.