Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 132

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 132
Á d r e pa 132 TMM 2014 · 2 sögunnar og kenningarnar: Hvernig bár- ust nýjar kenningar og aðferðir vísinda til Íslands á árunum 1700–1850?6 Þó svo að þeir félagar lýsi m.a. náttúrufari og möguleikum á ýmiskonar landnytjum og hafi greinilega vanþóknun á hvers konar hindurvitnum bendir Þorsteinn á að athuganir þeirra hafi ekki nýst almenn- ingi sem skyldi, einkum þar sem Ferða- bókin var gefin út á dönsku í Dan- mörku.7 Þorsteinn dregur reyndar þann lærdóm af ferðalagi sínu um fortíðina að jarðvegur þurfi að vera fyrir hendi og hæfir menn tiltækir til flutninga svo að nýjar hugmyndir og kenningar geti bor- ist skjótt til landsins – eitthvað sem á jafnt við í dag og þá. Þessu til sönnunar nefnir hann til dæmis að íslenskir bænd- ur hafi verið tveimur öldum á eftir nágrannaþjóðum að tileinka sér búfjár- kynbætur. „Þetta megi sennilega skýra með almennum menntunarskorti og fastheldni á óbreytanleika tegundanna eins og bókstafur Biblíunnar felur í sér samkvæmt einfaldri túlkun“8, þvert á þróunarkenningu Charles Darwin.9 Fjölnismenn minntust Eggerts Ólafs- sonar strax í fyrsta hefti Fjölnis 183510 og álitu að hann hefði kennt Íslendingum „hvernig þeir gætu, með atorku og skyn- samlegri neyzlu máttar síns, lifað á Íslandi arðsömu og gagnlegu, ánægju- fullu og farsælu lífi.“11 Þar vísuðu þeir til „Búnaðarbálks“ Eggerts þar sem hann hafi gert „auð og yndæli ættjarðar sinn- ar“ að yrkisefni á einhverjum mestu hörmungartímum sem gengið hafa yfir íslensku þjóðina, þegar „ásýnd jarðar var ekki björt“.12 „Búnaðarbálkur“ var, eins og menn vita, ortur til þess að stappa stálinu í Íslendinga og opna þeim nýja sýn á landið og möguleika þess. Sú skoð- un kemur fram í kvæðinu að náttúran sé verk Guðs sem manninum beri að þakka, en það sé í valdi hans að nota sköpunar- verkið sér í hag. vissulega komu fram menn á þessum tíma sem beittu sér fyrir því að flytja nýjungar til landsins og nægir þar að nefna Björn Halldórsson í Sauðlauksdal sem var mikill frumkvöð- ull í jarðrækt og garðrækt.13 Það er þó erfitt að færa rök fyrir því að starf þess- ara manna hafi skipt sköpum um afkomu þjóðarinnar á þessum árum eins og Þorsteinn vilhjálmsson bendir rétti- lega á. Svo virðist sem frumkvöðlarnir hafi verið uppteknari af sambandi Guðs og náttúru. Guðmundur Andri Thorsson gefur okkur t.d. þá mynd af Benedikt Gröndal, þeim merka náttúrufræðingi, í bók sinni Sæmd14: „… Gröndal sjálfur, sem er eins fjarri því að vera sjómaður eða verkamaður og hugsast getur, fer því næst í fjöruna og fyllir þar pokaskjatta af kvikindum, krossfiskum, kræklingi, marflóm – hlægidýr kallar Matti þau.“15 Gröndal skildi eftir sig merk rit um nátt- úru Íslands og nægir þar að nefna Íslenska fugla16 en hugurinn er við skáld- skapinn og Guð fremur en vísindin: „Ekki tómur skáldskapur nei. Og útreikningar stjörnufræðinganna – ekki tómur skáldskapur nei, og rannsóknir jurtafræðinganna – ekki tómur skáld- skapur – ó nei – en samt gefa allar þessar rannsóknir og þessir útreikningar okkur nýjar og nýjar sannanir fyrir dýrð Drott- ins; og náttúran er orð Drottins. Efni þessara rannsókna er skáldlegt þótt formið sé það ekki.“17 vísindin fóru ekki að setja mark sitt á mannlíf á Íslandi fyrr en leið að alda- hvörfum. Grípum niður í bók Jóns Kal- mans Stefánssonar, Fiskarnir hafa enga fætur: „Árið 1898 vann náttúrufræðing- urinn mikli, Bjarni Sæmundsson, að fiskirannsóknum á Austfjörðum fyrir landshöfðingjann, skrifaði ítarlega skýrslu og birti í Andvara árið eftir. Þar segir að Norðfjörðurinn liggi mjög vel fyrir fiskveiðar […] bæði vegna þess að hann er stuttur og því ekki langræði, ef
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.