Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Síða 133

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Síða 133
Á d r e pa TMM 2014 · 2 133 ekki er farið á djúp, og þó allvel varinn fyrir sjávargangi, og svo liggur hann vel fyrir N.göngum, vegna þess að Hornið nær svo langt út og til norðurs.18 Byggðin tók kipp eftir útkomu skýrslunnar, þéttist hratt og lengdist, nokkrum árum síðar var risið þorp með öfluga útgerð. Saga Nesþorps, síðar Neskaupstaðar, örlög fólksins sem þar hefur lifað og dáið, kossar þess og svíðandi orð, faðmlög og óstöðvandi grátur, og þá um leið gervöll saga Ara, er tilkomin vegna fjögurra lína frá Bjarna náttúrufræðingi í tímaritinu Andvara.“19 Bjarni Sæmundsson var, eins og við vitum, brautryðjandi í haf- og fiskifræðilegum rannsóknum og afkasta- mikill fræðirithöfundur um lífríki Íslands.20 Alþingi áttaði sig á því að þekking hans skipti máli fyrir íslenska þjóð og veitti honum fyrst fé árið 1906 sem hann nýtti til rannsókna um borð í vélbátum á vestfjörðum.21 Um svipað leyti og Bjarni sinnti rann- sóknum á hafinu hófust formlegar til- raunir á vegum Búnaðarfélags Íslands. Áður höfðu verið settir á laggirnar fjórir bændaskólar um landið og því mætti færa rök fyrir því að jarðvegur hefði verið fyrir hendi meðal bænda til þess að nýta sér nýja þekkingu.22 Á þessum tíma var vart hægt að tala um að til væri nokkurt ræktað land við bæi. verkefnin snerust því einkum að því að prófa hvort hægt væri að nota hér á landi erlendar aðferðir, tækni og nytjaplöntur.23 Jarða- bætur voru hafnar en verkið sóttist seint. Svona lýsir Málfríður Einarsdóttir skáld- kona stöðunni í Þingnesi árið 1912: „Húsatúnið var girt […] Síðan var borið á þýfið umhverfis fjárhúsin og hirt töðu- hárið sem spratt. En sprettan var lítil og karginn illvinnandi. Lítil flöt var gerð með torfljá, og við það sat. Í heimatúninu voru gerðar smáflatir með þessum vondu verkfærum […] Umhverfis túnin voru síki, blautar mýrar með dökkum döprum gróðri, hálfgrösunum, fífunni, og mór í jörðu […] Öll hryggðin, sem hefur bagað mig ævilangt, held ég sé runnin úr þess- um mýrarfenjum, þar sem fugli var varla vært né mús fyrir bleytu, blandaðri járn- rauða, og ekki maðkur í mold.“24 Allt mjakaðist í rétta átt þó hægt gengi. Merkir frumkvöðlar komu fram á sjónarsviðið sem fluttu með sér þekkingu frá útlöndum. Rannsóknir þeirra voru fyrst og fremst hagnýtar en jafnframt þurfti einnig að styrkja þekkingargrunn- inn sem hin hagnýtu vísindi byggðu á. Að því kom að alþingi áttaði sig á því að allt þetta vísindabrölt gagnaðist þjóðinni og árið 1929 voru samþykkt lög um heimild handa ríkisstjórninni til að setja á stofn rannsókna- og tilraunastofu í þágu atvinnuveganna. Áherslan var fyrst og fremst á landbúnað og sjávarútveg og endurspeglaði hún reynsluheim alþingis- manna á þessum tíma. Málið fór hins vegar í ágreining og ekkert varð úr fram- kvæmdum. Kreppan mikla skall á og finna þurfti ný úrræði til þess að takast á við samdrátt og atvinnuleysi. vorið 1935 voru svo loks samþykkt lög um rann- sóknir í þágu atvinnuveganna við Háskóla Íslands. Atvinnudeild Háskólans var orðin til og tók hún formlega til starfa 17. september 1937. Þáttaskil urðu í nytjarannsóknum á Íslandi með stofnun Atvinnudeildar Háskólans og síðar Rannsóknaráðs ríkis- ins sem stofnað var í skugga ófriðarins mikla árið 1940.25 verksviðið var víkkað út og náði nú yfir hagnýtar náttúrufræði- rannsóknir í landinu. Til starfa réðust ungir vísindamenn sem sótt höfðu sér þekkingu til útlanda og skyldu þeir sýna með rannsóknum sínum „á hvern hátt þjóðin gæti sem best fullnægt þörfum sínum með framleiðslu nauðsynlegustu vörutegunda ef siglingar að eða frá land- inu stöðvuðust að miklu eða öllu leyti af völdum ófriðar.“26 vísindastarfinu óx
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.