Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Qupperneq 68
6(5
ólafsf). Sjúkraskýlið, sem byggt var á árinu, tók fyrst til starfa í
nóvemberbyrjun — var ekki tilbúið fyrr. Legudagar og sjúklingar voru
því fáir. Ein fulllærð hjúkrunarkona starfar við sjúkraskýlið, en
læknir verður að minnsta kosti fyrst um sinn að sjá um fæði handa
sjúklingum og hjúkrunarkonu.
Akureyrar. Að aðsókn að sjúkrahúsinu hefir heldur rénað seinni
árin frá því, sem var, er meðfram fyrir meira pláss, sem orðið er í
Kristneshæli fyrir berklasjúklinga (þar eru nú venjulega 75 sjúk-
lingar), en meðfram því að kenna, að allmargir sjúklingar leita til
Reykjavíkur, einkum Landsspítalans, þar sem eru fullkomnari tæki,
fleiri sérfróðir læknar og handlækningaaðgerðir það ódýrari en á Ak-
ureyrarspítala, að það vegur svo að segja upp á móti ferðakostnaðin-
um. Og enn veldur hér nokkru, þó að smámsaman fyrnist, sá orð-
rómur, að aseptik sé ekki góð við skurðlækningar hjá okkur. Stafar
sá orðrómur frá því fyrir nokkrum árum, að vart varð við ígerð i
skurðum við og við. Ég gat þess í ársskýrslum mínum 1929 og 1930
og að orsökin hefði legið í bilun á sótthreinsunarkatli sjúkrahúss-
ins. En þetta varð enn meiri ástæða til, að einhverjir óvildarmenn
mínir og sjúkrahússins héldu við orðasveim um þenna ágalla þrátt
fyrir það, þótt vel væri úr honum bætt. Það var keyptur nýr ketill
1930 og annar minni (autoclav) 1933. Við þær umbætur skipti svo
um, að fullyrða má, að aseptik okkar standi ekki að baki annara. —
Vegna ójafnrar spennu í rafleiðslu sjúkrahússins var löngum ólag á
kvartsljósunum þetta ár, svo að ekki var unnt að láta lampana loga
nema stutt í einu. Af þessum ástæðum urðu ljóstímar miklu færri en
endranær, samtals 537 klukkustundir eða Ijóstímar. í Röntgenstof-
unni voru myndir teknar af 180 sjúklingum og gegnumlýsingar af 13.
Höfðrahverfis. Sjúkraskýlissjóðurinn er nú orðinn kr. 7297.36.
Vopnafj. Sjúkrastofan hér hefir á þessu ári ekki verið notuð neitt
að ráði, annað en nótt og nótt fyrir sjúklinga langt að, sem ekki gátu
náð heim aftur samdægurs.
Seyðisfj. Engar frekari breytingar gerðar á sjúkrahúsinu eða rekstri
þess, en því vel haldið við og ýmislegt smálagfært. 1 undirbúningi
er dálítil viðbygging við spítalann, sem bæta á úr þvi, sem mest van-
hagar um, en það er góð skurðstofa, dagstofa fyrir sjúldinga og 2—3
eins manns herbergi. Á Röntgenstofunni voru 18 sjúklingar mynd-
aðir og 75 gegnlýsingar gerðar á 50 sjúklingum. Ljósböð fengu uni
40 sjúklingar.
Mýrdals. Röntgentæki (Coolinax IV frá Sanitas í Berlin) voru
keypt handa sjúkraskýlinu á þessu ári.
Keflavikur. I Sandgerði var á vertíð, eins og verið hefir undanfarið,
lærð hjúkrunarkona á vegum Rauðakrossins. Hún hefir haft með
höndum eftirfarandi tilfelli:
ígerðir í höndum ......................... 72
Hálsbólgu ................................. 16
Heimakomu ................................... 1
Liðagigt .................................... 2
Skarlatssótt ................................ 2