Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Síða 84
82
►
Þistilfi. íþróttir ekkert ræktar.
Vopnafi. Íþróttalíf hefir verið með dáufara móti á þessu ári.
Hróarstungu. íþróttaiðkanir svo að segja engar, nema svolítið við
alþýðuskólann á Eiðum.
Mýrdals. Áhugi á íþróttaiðkunum virðist fara vaxandi. Auk hinna
árlegu sundnámskeiða voru haldin tvö stutt iþróttanámskeið í hérað-
inu á þessu ári. Sundkennsla fór að þessu sinni öll fram í sundlaug
Eyfellinga og kom að betri notum en áður, þegar kennt var í hverj-
um hreppi við lakari aðstöðu.
Vestmannaeyja. Lokið var að mestu við sundlaugarbyggingu. Hún
er að flatarmáli 12 X 20 m., og dýpt minnst 1 in., en mest 2 m. I
laugina er hafður sjór frá sjógeyminum, og er hann hitaður upp með
katli, sem gefinn er upp fyrir um 230 þús. hitaeiningar. Hitastig i
lauginni er haft 18—20 stig á C., og hefir sá hiti fengizt á 36 tímurn
frá 5. gr. byrjunarhitastigi i sjónum. Laugin tekur um 330 smálestir
af sjó. Hér eru tvö knattspyrnufélög, sem einnig starfa að fleiri
útiíþróttum. Sunkennsla fer eftirleiðis fram í sundlauginni.
Grímsnes. íþróttanámskeið var haldið í vetur í Skeiðahreppi og var
vel sótt. íþróttaáhugi breiðist út frá skólunum á Laugavatni og' Hauka-
dal. Töluvert hefir borið á otitis media hjá sundfólkinu á þessum
stöðum, sem stafar sennilega frá laugavatninu.
Keflavíkur. Iþróttalíf hefir færzt i vöxt í héraðinu, sérstaklega þó í
Keflavík. Sundkennsla hefir verið í öllum hreppum. Sundnámskeið
var haldið fyrir Grindavíkurhrepp á Reykjanesi í hinni volgu laug,
sem þar er, en hún er fulllítil og þarf mikillar viðgerðar og breytinga
til að geta komið að fullurn notum. Óviða eru slík skilyrði sem þar,
að hafa volgan sjó til að synda í. Leikfimi vantar tilfinnanlega með
skólakennslunni. Er hún aðeins í einum skóla í öllu héraðinu.
10. Alþýðufræðsla um heilbrigðismál.
Auk ýmiskonar fróðleiks fyrir alþýðu um heilbrigðismál, sem jafn-
an birtist í blöðum og tímaritum (sérstöku tímariti um þessi efni
hefir þó enn ekki tekizt að halda lifandi) hefir ríkisútvarpið gefið
hlustendum kost á nokkurri heilbrigðisfræðslu, og voru á árinu haldnir
á þess vegum 27 fyrirlestrar um þessi eða skyld efni.
Læknafélag Reykjavíkur gekkst og fyrir heilbrigðissýningu til al-
þýðufræðslu í Reykjavík og naut til þess aðstoðar hjá Institut fúr
Berufskrankheiten í Berlín, sem lánaði sýningarmunina. Var sýningin
mikið sótt.
Landlæknir gaf út á árinu tvö smárit til alþýðufræðslu:
1. Leiðbeiningar um kynsjúkdóma, samdar með sérfræðilegri aðstoð
Hannesar Guðmundssonar kynsjúkdómalæknis, og eru þær gefnar
út samkvæmt kynsjúkdómalögum handa læknum til útbýtingar
meðal sjúklinga sinna. En ástæða væri til að dreifa þeim nokkrti
víðar, ekki sízt meðal skólafólks, og er því hér með skotið til lækna.
2. Leiðbeiningar um meðferð ungbarna, samdar með sérfræðilegri
aðstoð Katrínar Thoroddsen, barnasjúkdómalæknis. Eru ljós-
mæðrum fengnar þessar leiðbeiningar í hendur og til þess ætlazt,