Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Blaðsíða 107
105
að skilja, að aí'turkippur sé kominn í sjúkrahúsahald landsmanna, því
að í undirbúningi er að reisa allmargt sjúkrahúsa og nokkur þegar
í byggingu. Lítur út fyrir, að fyrst komi í gagnið, auk fyrr nefndra
og annarra smáskýla, ný sjúkrahús á Akranesi, Patreksfirði og í
Keflavík, er hvert um sig' mun rúma milli 20 og 30 sjúklinga. Eftir
því sem horfir, mun sjúkrarúmum í landinu fjölga á þessum áratug
rneira en nokkru sinni áður á svipuðum tírna.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Ástandið í sjúkrahúsmálum bæjarins fór sízt batnandi á ár-
inu. Þess var líka naumast að vænta, þar sem engin sjúkrarúm bætt-
ust við, en fólkinu fjölgaði allverulega, og aðstreymið að sjúkrahús-
um bæjarins af utanhéraðsfólki fer sífellt vaxandi.
Borgarnes. Sjúkrahús er ekkert í héraðinu, en eins og lýst var í
síðustu skýrslu, er nú unnið að því að safna fé til sjúkraskýlisbygg-
ingar, og vex sjóður þessi ört. Kvenfélagið í Borgarnesi hélt uppi Ijós-
lækningastofu á útmánuðum, og virtist það gera gagn. Sjúkrasamlög
voru stofnuð á árinu í Borgarnesi og í Hraunhreppi. Taka þau til
starfa á nýári. Undirbúningi að stofnun sjúkrasamlaga er að mestu
lokið í Borgarhreppi og Álftaneshreppi, en í Kolbeinsstaðahreppi og
Eyjahreppi var tillaga um stofnun samlaga felld á almennum hrepps-
fundum.
Dala. Sjúkraskýlið var leig't kaupfélagsstjóranum til íbúðar allt til
siðustu dagana í desember.
Patreksjj. Sjúkrahúsið rekið með svipuðum hætti og áður. Vegna
starfsfólksvandræða var ekki hægt að taka nærri alla þá sjúklinga,
sem þörf hefði verið á, og því voru sendir burtu allir, sem hægt var
burt að koma. Ég gat helzt ekki tekið aðra en slasaða menn, svo og
aðra, er bráðlá á að taka. Rétt upp úr áramótum var afráðið að byggja
nýtt sjúlcrahús, þar sem hið gamla var orðið svo úr sér gengið, að
óviðunandi mátti telja. Auk þessa er húsið sýnilega of lítið. Um sum-
arið var svo hyrjað á byggingu 19 sjúklinga sjúkrahúss, sem gert er
eftir teikningu húsameistara ríkisins.
Flateyrar. Byrjað var á byggingu læknisbústaðar og sjúkraskýlis
í síðast liðnum júlímánuði. Þörfin fyrir slíka byggingu var mjög að-
kallandi, enda kom þegar í ljós ótrúlega mildll áhug'i á málinu, þegar
því var hreyft. Á fáum mánuðum söfnuðust tugir þúsunda króna í
sjúkraskýlissjóð Flateyrar. Sýslunefnd V.-ísafjarðarsýslu samþykkti
20 þúsund króna fjárframlag til bygg'ingarinnar, og hreppsfélög'in í
héraðinu lofuðu yfir 30 þúsund króna framlagi. Héraðslæknir er
óánægður með viðskipti sin við skrifstofu húsameistara ríkisins í
sambandi við byggingarframkvæmdirnar. Átelur hann drátt, er á því
varð, að uppdráttur fengist, svo og, að hann fékk ekki sjálfur að
ráða meira um gerð hússins. Telur hann „húsið, í þeirri mynd, sem
það er nú i, nothæft, en fjarri því að vera gott. Veldur þar mestu um,
að húsið var mjókkað um 75 sm frá því, sem ráðgert var. Þessi
mjókkun um 57 kúbíkmetra olli skipulagsbreytingu á húsinu og
þrengslum alls staðar. Tafði þetta allt svo fyrir byggingunni, að henni
verður ekki lokið fyrr en á næsta sumri. Hefur þetta valdið margs
konar óþægindum og stórauknum kostnaði.“ (Varla hefur þó orðið
n