Læknaneminn - 01.04.1994, Síða 24

Læknaneminn - 01.04.1994, Síða 24
Oft sést á tölvusneiðmynd og ómun ef bláæðadrönglar eru í nýmabláæð eða holæð (vena cava). Ef talin er ástæða til að rannsaka nánar hvort bláæðadrönglar séu til staðar kemur til greina að gera svokallaða holæðamyndatöku (cavographia) eða þá ómskoða holæðina sérstaklega. Einnig má sjá bláæðadrönglavið slagæðamyndtöku. Stundumþarf að meta nánar starfshæfni nýma með ísótóparannsókn, til dæmis hjá sjúklingum sem em í nýrnabilun og þola því illa brottnám á nýra. Loks má nefna ástungu (til dæmis ómstýrða) á nýrnafrumukrabbameini í þeim tilgangi að staðfestagreiningu. Skiptarskoðanir eru um gi idi þeirrar rannsóknar. Því hefur verið haldið fram að hægt sé að sá meininu með ástungunni og því sé eina raunverulega ábendingin staðfesting greiningar hjá sjúklingum sem ekki er treyst í aðgerð. Auk þess getur verið erfitt að lesa úr slíkum sýnum þannig að meinafræðileg greining sé ótvíræð (8). MYNDRANNSÓKNIR í LEIT AÐ MEINVÖRPUM Meta þarf í hverju tilviki hvaða rannsóknir er skynsamlegt að gera í leit að meinvörpum og er þá einkum stuðst við klíníska skoðun og sögu sjúklingsins. Yfirleitt er fengin lungnamynd og ísótóparannsókn afbeinum en ómskoðun eðatölvusneiðmyndir af lifur ef 1 ifrarpróf em brengluð. I völdum tilvikum er fengin tölvusneiðmynd af heila. RANNSÓKNIR Á BLÓÐI OG ÞVAGI Flestir hafa lækkaðan blóðrauða við greiningu og margir einkenni blóðleysis (3,11,12). Algengast er blóðleysi tengt langvinnum veikindum (anemia of chronic disorder) en blóðtap vegna blæðingar er yfirleitt óverulegt nema blóðtap sé mikið í þvagi. I kringum 2% sjúklinganna hafa verulega hækkaðan blóðrauða vegna fjölgunar rauðra blóðkorna (erythrocytosis). Sökk er oft hækkað og geturjafnvel sést þriggja stafa sökk. Flestir hafa þó sökk innan eðlilegra marka (3). Allt að 2/3 sjúklinganna hafa smásæja blóðmigu. Ef meinvörp em i lifur getur sést hækkun á lifrarprófum og alkalískur fosfatasi hækkar oftast efbeinmeinvörp eru til staðar. Onnurblóðpróf hafa óverulega þýðingu og enn eru ekki þekktir æxlisvísar (tumor markers) sem hægt er að nota til greiningar eða við eftirlit. STIGUN Markmið stigunar er að velja meðferð við hæfí og spá betur fyrir um lífshorfur sjúklinganna. Flestir styðjast við klínískt stigunarkerfi sem kennt er við Robson (1969) (mynd 7) og lengi hefur verið notað í Bandaríkjunum og einnig hér á landi (20). Annað stigunarkerfi er TNM- kerfið (Tumor-Node- Metastasis, 1987) semnáðhefurútbreiðsluíEvrópu. Það er ítarlegra en ekki eins handhægt og það bandaríska. MIÐFERÐ Meðferð ræðst af því hvort sjúkdómurinn er staðbundinn (stig I-III) eða ekki (stig I V= meinvörp). Brottnámsaðgerð á nýra er alltaf reynd ef meinvörp eru ekki til staðar (8,21). Yfirleitt er farið í gegnum skurð undi r riíj aboga að nýranu og það fj arlægt ásamt fitunni umhverfís og Gerotasfelli (-fascia). Umdeilt er hvort alltaf eigi að ijarlægja eitla í kringum nýrað. Með því móti verður stigun nákvæmari og sumir telja að hægt sé að hefta útbreiðslu sjúkdóms sem eingöngu hefur náð í eitla nálægt nýranu (22). Hér á landi eru eitlar yfírleitt aðeins fjarlægðir efþeir eru stækkaðir eða harðir við þreifmgu í aðgerð. Önnur meðferð er yfírleitt óþörf á stigum I-III. Árangur aðgerðar er yfirleitt mj ög góður og skurðdauði (dánir <30 daga frá aðgerð) hefur haldist í kringum 2-3% sem er mjög viðunandi fyrirjafn stóraaðgerð (3). Brottnámsaðgerð er einnig oft gerð á stigi IV en þá í líknanlegum (palliation) tilgangi, til dæmis vegna kviðverkja, fyrirferðar eða mikillar blæðingar í þvagi (23). Stundum má reyna svokallaða “embolisation” í slíkum tilfellum. Þá eretanóli eða öðrum efnum sprautað, við slagæðamyndatöku, í slagæðartil æxlisins. Það veldur stíflu í þeim og síðan drepi og samfalli á æxlinu. Önnur meðferð kemur einnig til greina á stigi IV en árangur er takmarkaður. Þar má helst nefna (5,8,23): Geislameðferð: Oft fæst góð líkn með geislameðferð, ekki síst á meinvörp í heila, beinum og lungum. Engu að síður er nýrnafrumukrabbamein ekki geislanæmt æxli. Hormónameðferð: Ymiss konar hormón hafa verið reynd en prógesterón hefur reynst einna best. Þessi nreðferð hefur lítið verið notuð síðustu ár enda LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.