Læknaneminn - 01.04.1994, Síða 31
Tafla 1. Cadherín flokkar (9)
I. í utanfrumuhluta kemur sama amínósýruröðin
fyrir fjórum sinnum (four cadherin repeats).
1) “Klassísk” cadherín
Hópur 1: (Finnast flest við beltistengi)
N-cadherín
R-cadherín
P-cadherín
E-cadherín
B-cadherín
EP-cadherín
U-cadherín
XB-cadherín
Hópur 2: (Hlutverk og staðsetning óþekkt)
Cadherín 6, 8-11
Aðrir hópar:
M-cadherín (niuscle cadherín)
Cadherín 5 (endothelial cadherín)
2) Cadherín sem vantar innanfrumuhluta
(intracellular domain)
T-cadherín
3) Desmósóm cadherín
desmoglein 1-3
desmocollin 1-3
II. I utanfrumuhluta kemur sama amínósýruröðin
fyrir oftar en fjórum sinnum og innanfrumuhlutinn er
ólíkur.
1) Fat (prótein afurð ákveðins bœligens)
2) PC42 ('protocadherín )
3) PC43 (annars konar ‘protocadherín )
Cadherín eru langflest byggð upp úr utanfrumu-
, innanhimnu- (transmembrane) og innanfrumu-
einingum (mynd 2) (9).
Staðsetning cadherína í frumum takmarkast í
flestum tilfellum við svæðið innan beltistengjanna
(adherens junctions), þ.e. apicalt í frumunum en þó
neðan (basalt) þéttitengsla (zonula adherens) (mynd
3). Nú hefur komið í ljós að svokölluð catenín (a,
þ og y) brúa tengslin milli cadherína og örþræði
beltistengja (actin filament) (mynd 2). Tilvera
catenína er nauðsynleg til þess að cadherín geti starfað
eðlilegasemsamloðunarsameindir(9,10,11,12), en
nánar verður Qallað um áhrif catenína á starfsenri
cadherínasíðar.
í mörgum tilfellum gefa nöfn cadherína hugmynd
um dreifingu þeirra í veijum líkamans. Þannig fmnst
E-cadherín (epithelial) í frumuhimnum vel flestra
þekjuveíja (13), N-cadherín (neural) í frumuhimnum
tauga- og vöðvavefja (8) og P-cadherín (placental) í
frumuhimnum músafylgju (14). Mikil skörun á sér
þó stað, til dæmis fínnst P-cadherín mjög víða í
þekjuvef líkamans (13) og frumur taugaveljar tjá
B-, R-, T- og E-cadherín, þó tjáning þeirra á N-
cadheríni sé mest áberandi (9). Eiginleikar og
útbreiðsla E-, P- og N-cadherína eru best þekkt, enda
algengust (12).
HLUTVERK CADHERÍNA
í EÐLILEGUM ÞEKJUVEF
I eðli legum þekj uvef er samloðun mi 11 i þekj ufruma
mikil. Arið 1944varsýntframáaðsákraftursemþarf
til þess að rjúfa tengsl milli eðlilegra þekjufruma var
þrefalt meiri en til að rjúfa tengsl milli illkynja fruma
(8). Hér liggur beint við að ætla að minni tjáning eða
virkni samloðunarsameinda milli illkynja fmma eigi
hlutaðmáli.
Hlutverk cadherína í eðlilegum þekjuvef er
aðallega þríþætt:
I fyrsta lagi er vitað að cadherín bindipróteinin
skipta höfuðmáli fyrir samloðun þekjufruma því ef
virkni annarra samloðunarsameinda er hindruð
viðhalda fmmumartengslum sín á milli svo framarlega
sem virkni cadherína er eðlileg. Ef virkni cadherína
erafturámótihindruð, losnafrumurnar úr tengslum
við hvor aðra (15).
Mynd 3. Beltistengi (adherens junctions) ogþétti-
tengsli (zonula adherens) milli þekjufruma ísmágirni.
LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.
25