Læknaneminn - 01.04.1994, Page 43
HRORNUN
HJÁVERKANIR
^ LIKAMLEGIR
-ÞÆTTIR
AÐRIR SJUKDOMAR
KRABBAMEINID
MISSIR:
SAMFELAG
FJOLSKYLDA
LANGÞREYTA
SVEFNLEYSI
HJALPARLEYSI
AFSKRÆMING
OTTI VIÐ SJUKRAHUS OTTI VIÐ VERKI
FJOLSKYLDUAHYGGJUR FJARMALAERFIÐLEIKAR
OTTINN VIÐ DAUÐANN MISSIR SJALFSVIRÐINGAR
OTTI VIÐ FRAMTIÐINA
VISAR HVER A ANNAN
VINIR KOMA EKKI
GREINDIST SEINT
LÆKNIR ALDREI VIÐ
MEÐFERÐ DUGAR EKKI
Mynd2. ALVERKURerþýðingáenskaorðasambandinu "totalpain", enmeðþví er reyntað nálgastinntakið
frá sem flestum hliðum. Fjölmargir þættir í sálarlífi og umhverfi hins sjúka hafa eða geta haft mikil áhrif á
einkenni, þar á meðal verki. Lœknum hœttir hins vegar til að einblína á líkamlegu þœttina.
hundrað árin morfín í formi stungulyfs til að lina
verki.
Hospice (13)-hreyfingin' (" sæluhúsahreyfingin")
er sú hreyfing á Vesturlöndum sem á undanförnum
áratugum hefur mest látið til sín taka hvað varðar verk i
og verkjameðferð yfírleitt, svo og líkn alla. Þessi
hreyfmg hefur vaxið upp af rótum líknarvinnu nunna
og munka á nítjándu öld. Og nú er svo komið að
kerfisbundinn áróður og fræðsla hefur haft í för með
sér vaxandi skilning meðal heilbrigðisstarfsmanna og
almennings á miki lvægi góðrar verkjameðferðar auk
annairar einkennameðferðar* 2. Einn helsti frumkvöðull
þessarar hreyfingar er Cicely Saunders3 sem stofnaði
og hefur verið í forsvari fyrir StChristopher's Hospice
í Lundúnum.
Vísir að Hospice-hreyfingu hefur verið starfræktur
í samvinnu við Krabbameinsfélag Islands frá því
1987. Þarhafa hjúkrunarfræðingarog læknarmyndað
kjarnaog farið ívitjanirheimtilkrabbameinssjúklinga
og alnæmissjúklinga (14) með sjúkdóm á lokastigi
og með árangursríkri einkennameðferð gert þeim kleift
að dveljast lengur heima en ella. Meira en helmingur
þeirra sj úkl inga sem nj óta þj ónustu Heimahlynningar
Krabbameinsfélagsins deyr heima í faðmi
fjölskyldunnar. Að Heimahlynningu starfa nú fimm
hjúkrunarfræðingar og að jafnaði tveir læknar. Til
ráðgjafarog stuðningshefurhópurinnRáðgjafanefnd
um líkn. Það er þverfaglegur hópur sérfræðinga sem
hjálpar til við leysa einstök mál ef með þarf og hefur
einnig staðið fyrir námskeiðum og ráðstefnum um
einkennameðferð og aðraþætti líknar.
Á Krabbameinslækningadeild Landspítalans
'Enska orðið hospice erdregið aflatneska orðinu hospitiwn ogþýðirgistiheimili. Það er skylt orðinu hospessem merkir
gestur eða gistivinur (sbr. hin frœgu andlátsorð Hadrianusar Rómarkeisara: Animula, vagula, blandula/Hospes
comesque corporis/ o.s.frv.). Orðið hospital er af sama stofni.
2Orðið einkennameðferð er tilraun tilþess aðþýða enska hugtakið "symptom therapy "eða "symptom control", og er meðferð
sem miðar að því að meðhöndla einkenni sjúklings en ekki endilega orsök einkenna sem getur verið margvísleg (t.d.
meinvörp í beinum). Sígilt dœmi um einkennameðferð er verkjalyfjameðferð. Kokhraustir "lœknar" og "lœknanemar"
hafa stundum og í skœtingsskyni kallað einkennameðferð "undanhaldslœknisfrœði". Slíkir gripir œttu fremur að sinna
mólekúlum en mönnum/
1 Hjúkrunarfrœðingur, félagsráðgjafi og lœknir (íþessari röc).
LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.
37