Læknaneminn - 01.04.1994, Síða 171
í læknadeild og verður líklega orðið við þeirri ósk á
næstunni og verður hún kennd á 1. eða 2. ári.
3. ár
Gerð var athugasemd við þann óheyrilega kostnað
kennslugagna í lyijafræði sem 3. árs læknanemar
þurfa að standa undir. Eftir veturinn sitja menn uppi
með ýmiskonar fjölrit af allrahanda toga sem kosta
óforgengilegar 19.700.- krónur með kennslubók.
Hefur sú ósk verið sett fram af nemendum að kennarar
í lyíjafræði styðjist fremur við eina kennslubók sem
auðsýnilega yrði mun ódýrari kostur, enda myndi sú
eign ekki bara nytjast sem lestrarefni fyrirpróf heldur
og sem uppflettirit fyrir seinni tíma.
Oskir hafa borist af 3. ári um að heilsárspróf muni
byrja kl. 9 í staðin fyrir kl. 14, enda þol líklega betra
ef af svefni þú ert vakinn til prófs.
4. ár
Vísindaverkefnið gekk vel, en synd er hve læknar
og kennarar gáfu sér lítinn tíma til að njóta afraksturs
þess er kynntur var í fyrirlestrahaldi því er í lok
vorannar var haldið og var mæting þeirra á fyrirlestra
slæm og barst erindi þar að lútandi fráReyni Tómasi
Geirssyni þar sem hann gagnrýndi háttarlag sinna
kollega. Er ég fyllilega sammáli hans gagnrýni því
hluti af kveikju þeirri sem efla ætti læknanema til
áframhaldandi vísindastarfs gæti verið áhugi lækna
og athugasemdir þeirra á fyrirlestrum sem þessum.
5. ár
Sem fyrr hefur sá hópur sem fímmta árs nemar
samanstanda af verið frumkvöðlar og um leið
tilraunadýr hins nýja kennslufyrirkomulags
margumtalaða. Hinn misleiti, -lyndi og -lukkaði
hópur sat þó nú í kerfi ekki ósvipuðu því er áður hefur
forverum vorum verið borið til handa.
Oánægja er með það að ekki skyldi takast að hafa
valmánuð þann sem er í lok fimmta ársins lengri en 2
vikur og liggur nokkuð ljóst fyrir að það mun ekki
breytast á næstunni.
Alit meirihluta læknanema var það að stytta mætti
geðkúrsinn um 2 vikur til þess að valmánuðurinn
mætti vera einn mánuður og sérstaklega þar sem
læknanemar sátu 4 vikur af þessum 10 í
áfengisvarnarmeðferð á 33A og Vífilstöðum, hluti
semhafðitekið 1 vikuáður.
6.ár
Nýbreytni sú að hafa 1 mánuð í val í desember
mæltist vel fyrir en nýttist mönnum misvel. Verður
valmánuður þessi áfram til staðar.
NORDISK FEDERATION FÖR
MEDICINSK UNDERVISNING
I vor var haldið norrænt þing kennslumálanefnda
á Hótel Örk í Hveragerði og vomm við Guðjón fonnaður
fulltrúar íslenskra nemenda á þessu þingi en Kristján
Erlendsson sá um veg og vanda skipulagningarþess,
en auk hans voru þar Helgi Valdimarsson, Bjami
Agnarsson og Atli Dagbjartsson en allt í allt voru þar
sex tugir norrænna kennslumálafrömuða.
Umræðuþemað var Studievej ledning, semsagt hvemig
best er að styðja við og leiðbeina læknanemum í sínu
námi og hvernig ber að takast á við þau margbrotnu
vandamál sem komið geta upp í læknanenrans lífsins
öldusjó.
Þessi ráðstefna var okkur læknanemum til góðs
þar sem nú verður til staðar þriggja manna hópur (I
nemandi og 2 kennarar) sem unnt verður að leita ti 1 ef
ákveðin persónuleg vandamál dúkka upp hjá
einhverjum okkar læknanema.
Sérstakar þakkir fá Björn Pétur og Þórir
Auðólfsson fyrir að pósa fyrir hinn norræna kvennahóp
í heita potti og gufubaði Hótels Arkar sem og að
vísitera þeim í næturlífí vorsumars Reykjavíkur.
Mörg önnur mál voru rædd í kennslumálanefnd
en mörkin í skrifum sem þessum set ég við þau erindi
sem rekin vona af læknanemum, en önnur mál voru
rædd að beiðni kennara deildarinnar.
Meðkveðju,
Fyrir hönd kennslumálanefndar
Helgi Birgisson
SKÝRSLAÍÞRÓTTANEFNDAR
Agætu deildarfélagar!
Enneitt áriðliðið!
LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.
157