Skírnir - 01.01.1943, Síða 19
Skírnir
íslendingar
17
út á Islandi fleiri rit að tiltölu við fólksfjölda en í nokkru
öðru ríki og 2,4-falt á við Danmörk, sem var næst í röðinni.
Á skáldskap hafa íslendingar alla tíð lagt meiri stund
en dæmi munu til um aðrar þjóðir. Hann hefir verið
þjóðaríþrótt, sú íþróttin, sem alltaf var tiltæk hvar sem
var og hvernig sem á stóð, því að hann logaði á innsta
kveik vits og snilli og hélt því lengst hitanum í sálunni.
Snorri Sturluson segir í Eddu sinni, þar sem hann
talar um einn bragarháttinn: „Þenna hátt fann fyrst
Veili; þá lá hann í útskeri nökkuru, kominn af skips-broti,
ok höfðu þeir illt til klæða ok veðr kalt; þá orti hann
kvæði, er kallat er kviðan skjalfhenda“. Islendingar hafa
lagt mikið hugvit í að finna upp margvíslega bragarhætti,
sem ávallt eru bundnir föstum reglum um ljóðstafaskipun
og hendingar, og skáldamálið er geysiauðugt af myndum
og líkingum. Yfirleitt hafa menn haft gaman að hvers
konar hugsanaþrautum og tafl hefir verið mikið stundað.
Gáfur þjóðarinnar í þeim listum, er hrífa augað, hafa
lengst af aðeins getað komið fram í skrautlist og heimilis-
iðnaði alþýðunnar, svo sem í lýsingu (illumination) hand-
rita, gull- og silfursmíði, tréskurði, vefnaði. Smekkurinn
virðist hafa verið næmur fyrir djúpum, hreinum litum í
þróttmiklu, vel stilltu samræmi. 1 skrautlistinni er form-
festa, fastheldni við hinn gamla grundvöll, en jafnframt
hugvitsamlegar fléttur og flækjur línanna, er ekki verður
greitt úr nema með skarpri athugun, og trufla þó ekki
heildarsvipinn, sem venjulega er hreinn og frjálsmann-
legur. Það er eins og viðleitnin hafi verið sú, að samþýða
lífmikið og fjölbrugðið línuspil skýrum aðaldráttum.
Á síðustu 40 árum hefir íslenzk málaralist og mynd-
höggvaralist náð þeim þroska, að gera má sér góðar vonir
um framtíð þeirra, og sama er um söng og tónlist. Margir
íslendingar eru gæddir góðri söngrödd. Forn-fslendingar
lögðu mikla stund á líkamsmennt, og á síðustu árum hefir
vaknað lifandi áhugi á öllum greinum íþrótta og eru þær
nú stundaðar af miklu kappi.
f trúarefnum hafa íslendingar alla tíð verið frjálslyndir
2