Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 25
Skírnir
Goðorð í Rangárþingi
23
eru nefnd með nafni milli tíu og tuttugu goðorð, og eru
nöfn allra þeirra dregin af nöfnum ættanna, sem áttu þau,
eða ef til vill sums staðar með tilliti til íbúa héraðanna,
sem þau aðallega náðu yfir. Þannig eru nefnd Ávellinga-
goðorð, Brundælagoðorð, Dalverjagoðorð, Fljótamanna-
goðorð, Jöklamannagoðorð, Laufæsingagoðorð, Lundar-
mannagoðorð, Melmannagoðorð, Rauðmelingagoðorð,
Reykdælagoðorð, Reykhyltingagoðorð, Reyknesingagoð-
orð, Snorrungagoðorð, Þórsnesingagoðorð, og Æverlinga-
goðorð. Þess eru, hins vegar, engin dæmi, að goðorð hafi
verið nefnt eftir einhverjum stað, og allra sízt mundi goð-
orð hafa dregið nafn af svo ómerkilegum stað eins og
Hvítanes hlýtur að hafa verið, fyrst það er nú gleymt. Að
vísu hafa menn þókzt geta bent á nes eða landskika nærri
Ossabæ, sem hafi verið kallað svo, en það nafn gæti vel
hafa komið upp undir áhrifum frá Njálu.5) Það er að vísu
sennilegt að til hafi verið maður, sem hét Höskuldur Hvíta-
nesgoði, en það sannar engan veginn, að til hafi verið
Hvítanesgoðorð. Við finnum dæmi þess, að goðar hafi ver-
ið kenndir við goðorð sín, svo sem Snorri Hlíðarmanna-
goði, Þórarinn Langdælagoði og Þorgeir Ljósvetninga-
goði; eða við héruð þau, er þeir bjuggu í, svo sem Hróar
Tungugoði og Þormóður Skeiðagoði, eða við bústaði sína,
eins og Halldór Garpdalsgoði, Helgi Hofgarðagoði, Ingjald-
ur Sauðeyjargoði og Þorgrímur Kárnsárgoði. Úr Rangár-
þingi þekkjum við Úlf aurgoða. Auknefni hans, þykir mér
líklegast, hafi verið dregið af því, að Svertingsstaðir, þar
sem þeir frændur bjuggu áður en þeir fluttu að Dal, hafi
verið á Aurunum. En ekkert Auragoðorð hefir verið til.
Njála getur haft rétt fyrir sér í því, að goðorð Höskulds
hafi verið eitt af nýju goðorðunum, sem stofnuð voru við
setningu Fimmtardóms, en henni skjátlast í því að gera
það að goðorði með mannaforráði. Ástæðuna til auknefnis
Höskulds vitum við nú ekki, en það hefir áreiðanlega ekki
verið dregið af goðorði hans.
Þrír eru taldir í Landnámu göfugastir landnámsmenn
í Rangárþingi: Hrafn heimski, Ketill hængur og Sighvat-