Skírnir - 01.01.1943, Side 28
26
Halldór Hermannsson
Skírnir
langt yfir skammt. Nordal hefir ekki gætt þess, að Loftur
var náskyldur Reykvíkingum, og það hlaut að hafa mikla
þýðingu í þessu máli. Hallveig Fróðadóttir, föðursystir
Lofts, var kona Ingólfs landnámsmanns, og voru þeir Loft-
ur og Þorsteinn Ingólfsson því systkinasynir. Svo náin
frændsemi má ætla, að hafi komið til greina við goðorða-
myndunina, enda hefir þess verið getið til, að Loftur hafi
átt goðorð það, sem afkomendur Hásteins Atlasonar fóru
seinna með. Móðir Lofts var systir Flosa Þorbjarnarson-
ar, sem nam land á Rangárvöllum og flúið hafði úr Noregi
af því að hann drap þrjá sýslumenn Haralds hárfagra.
Faðir Flosa var ríkur hersir í Firðafylki og hafði varð-
veitt hof á Gaulum; fór Loftur þriðja hvert ár utan til að
blóta við það hof fyrir sína hönd og Flosa, því að Flosa
var ekki friðvænt í Noregi.
Það fer dálítið tvennum sögum um landnám Flosa. Það
er sagt, að hann hafi numið alla Rangárvelli hina eystri,
en um bústað hans þar er ekki getið. En af öðrum stað
má ráða, að hann hafi búið í Skarfanesi, því að þar er
sagt, að hann hafi haldið brúðkaup Þuríðar systur sinnar
og Jörundar goða. 1 því sambandi er þess getið, að Flosi
hafi átt öll lönd milli Þjórsár og Engár. Engin á er nú
kunn með því nafni, og er líklegt, að hér hafi misritazt
Engá fyrir Rangá eða jafnvel E(ystri) Rangá. Nú segir
Landnáma, að Ketill einhendi hafi numið Rangárvelli hina
ytri fyrir ofan Lækjarbotna og austan Þjórsár, en innan
þess svæðis liggur Skarfanes. Nú er tvennt til; annað
hvort, að standa eigi um landnám Flosa, að hann hafi
numið alla Rangárvelli hina efstu, það er nyrzta hlutann
milli Þjórsár og Eystri Rangár; eða, að hann hafi eignazt
landið milli Þjórsár og Ytri Rangár með konu sinni, sem
var dótturdóttir Ketils einhenda. Þetta kemur þá nokkurn
veginn í sama stað niður.
Er við athugum landnámsmennina, sem settust að á
þessu svæði, sjáum við, hve nátengdir þeir voru, þótt
nokkuð sé erfitt að gera sér grein fyrir aldri þeirra. Ketill
einhendi var að líkindum fyrsti landnámsmaðurinn hér.