Skírnir - 01.01.1943, Page 35
Skírnir
Grónar grafir
33
Og það raskar víst ekki heldur ró þessa ókunna prests,
þó að hann á miðri síðunni kvennamegin reki augun í
þetta af einskærri tilviljun:
Á rið 19 3 6:
Nr. 0. Dauðadagur 24. ág. Sólveig Helgadóttir. Kaupakona
á Hrauni. 23 ára. Drukknaði. Jörðuð í Fosstungu.
Af því að þetta gerðist hérna á prestssetrinu, má vera,
að honum verði það að stanza við línuna. Þarna hefir þá
orðið hér slys. Það er alltaf eitthvað sögulegt. Hann er
vís til að spyrja einhvern að því við tækifæri, hvernig
það hafi borið til. Og gamall maður eða kona segir hon-
um, að það hafi eiginlega enginn botnað í því, en þótt
ósköp sviplegt, jafnvel hörmulegt. Ég efast um, að hann
fái að vita meira. Og talið fellur þar með niður.
Allt annað geymir þögn moldarinnar.
Hún kom hingað 15. júní í vor.
Þuríður systir mín í Holti í Þröngadal eystra skrifaði
mér á útmánuðum, að hún hefði getað útvegað mér um-
beðna kaupakonu:
,,Hún heitir Sólveig Helgadóttir og er reglulega góð
stúlka. Ég vona, að þú takir henni opnum örmum, og að
ykkur komi vel saman“.
Þetta voru orð systur minnar.
Ég hafði síðar skrifað og beðið að stúlkan kæmi sem
fyrst, svo að hún gæti unnið að vorverkunum. Og ég hafði
fengið það svar, að hún kæmi með fyrstu bílferðinni að
austan. Það var þennan dag, og ég fór fram að Vík, enda-
stöð áætlunarbílanna, til að taka á móti henni. Karl vinnu-
maður var niður á Sigurðarstöðum að rýja geldfé. Þess
vegna fór ég sjálfur og gangandi. Farangurinn mátti
alltaf sækja seinna, en mér fannst viðkunnanlegra að ein-
hver tæki á móti stúlkunni og fylgdi henni út að Straumi.
Og svo fannst mér það líka aðeins hæfileg hressing að
ganga þessa þrjá kílómetra fram og aftur, því að mér er
3