Skírnir - 01.01.1943, Qupperneq 79
Skírnir
Vísindi, heilbrigð skynsemi og velsæmi
77
orða slíkt viðfangsefni eða hvaða atriði á að útiloka. Þar
verður í rauninni heilbrigð skynsemi eða dómgreind að
ráða. Vit og dul ræður því alltof oft, hvernig úrlausnar-
efnið er orðað. Jafnvel þótt rökréttum aðferðum sé beitt
við úrlausnarefnið, þá kann niðurstaðan að verða engu
traustari en sá dómur, réttur eða rangur, sem fólginn var
í forsendunum.
Sumir af erfiðleikunum við að taka hagfræðilegt efni
til vísindalegrar meðferðar sjást af því, sem nú skal
greina: Ef vér viljum greina orsök kreppu (eða stríðs
t. d.), þá ættum vér að spyrja sjálfa oss, hvað vér mein-
um með orðinu orsök í þessu sambandi. Ef miðað er við
meðferðina, þá er hin venjulega merking orðsins orsök
eitthvað á þessa leið: Það er almenn reynsla, þegar sund-
urleit fyrirbrigði eru rannsökuð, að séu ákveðin eðlisskil-
yrði látin endurtakast á ýmsum tímum, þá verður árang-
urinn í hvert sinn hinn sami. Það er ekki unnt að gefa
orðinu orsök ákveðna merkingu, nema unnt sé að endur-
taka tilraunina og fá sama árangur.
Ef um kreppu, eða stríð, er að ræða, þá heimtar rök-
vísin, að vér framleiðum, eða að minnsta kosti athugum,
ákveðin, samstæð, hugsanleg undanfarandi skilyrði og
sjáum svo, hvort kreppa kemur alltaf á eftir þeim. Með
því að vér getum ekki framleitt kreppur með tilraunum
og höfum ekki nægar athuganir til að finna með hagfræði-
legum aðferðum hin fjölmörgu atriði, er til greina koma,
þá verðum vér að álykta, að orðið orsök hafi ákaflega
loðna merkingu, þegar um kreppu er að ræða.
Þegar vér íhugum eðli mannlegra viðskipta, þá virðist
mér auðsætt, að ósamhverf fyrirbrigði ráða þar oft úr-
slitum. Satt er það, að sumir sagnfræðingar vorir voru
svo óskammfeilnir að kenna flestum háskólastúdentum
vorum, frá 1925 til 1938, að styrjaldir, ris og fall þjóðar
o. s. frv. væri ákveðið af alheimsorsökum að kalla má.
Þeir reyndu að sýna, að fjármálaöngþveiti, valdagræðgi
af hálfu Stóra-Bretlands, Frakklands o. s. frv. mundi hafa
haft sömu afleiðingar, hvort sem þýzki keisarinn sálugi