Skírnir - 01.01.1943, Side 115
Skírnir
Ræðismenn
113
Að þjóðarétti þurfa menn ekki að fullnægja ákveðnum
skilyrðum til þess að gegna ræðismannsstörfum, en í flest-
um ríkjum eru yfirleitt sett ákveðin menntunar- og þekk-
ingarskilyrði, sem menn verða að uppfylla til þess að kom-
ast í ræðismannsstöður. Gilda að sjálfsögðu ólíkar reglur
eftir því, hvort um útsenda eða kjörræðismenn er að ræða.
Annars hefir sú breyting orðið á skipun utanríkismála hjá
mörgum þjóðum á síðari tímum, að enginn munur er gerð-
ur á því, hvort menn eigi sérstaklega að taka við diplomat-
iskum störfum eða störfum sem útsendir ræðismenn, og
leiðir þá af sjálfu sér, að útsendir ræðismenn muni full-
nægja sömu skilyrðum og talin eru nauðsynleg og sjálf-
sögð fyrir diplomatiska fulltrúa. Sennilegt verður að telja,
að kvenfólk megi að öðru jöfnu takast á hendur ræðis-
mannsstörf.
Að þjóðarétti hvílir ekki skylda á ríkjum til að taka á
móti ræðismönnum, og er það því á þeirra valdi að synja
um móttöku á ræðismanni. Hitt er annað mál, að flest ríki
myndu af viðskiptalegum ástæðum raunverulega verða að
veita ræðismönnum viðtöku, því að gerðu þau það ekki,
myndu önnur ríki synja þeim um viðtöku á þeirra mönn-
um. Rússar hafa um nokkurt skeið ekki haft ræðismenn
erlendis, heldur eingöngu diplomatiska fulltrúa. Nokkru
fyrir byrjun heimsstyrjaldar þeirrar, sem nú stendur yfir,
kröfðust þeir þess, að þau ríki, sem þá höfðu ræðismanns-
skrifstofur í Rússlandi, legðu þær niður, og var það gert.
Um mótráðstafanir var þá ekki að ræða. Áður en Banda-
ríkin urðu þátttakandi í ófriðnum, lokuðu þau ræðismanns-
skrifstofum Þjóðverja og ítala, og svöruðu þessi tvö ríki
strax með því að loka ræðismannsskrifstofum Bandaríkj-
anna í Þýzkalandi og Ítalíu.
Það er tvímælalaus réttur fullvalda ríkja að þjóðarétti
að skipa ræðismenn. Það er einkamál hvers ríkis, hvaða
stjórnarvald framkvæmir skipunina. Á Norðurlöndum
mun það vera þjóðhöfðinginn, sem skipar aðalræðismenn
og ræðismenn, og utanríkisráðherrann, sem skipar vara-
ræðismenn. Hinn væntanlegi ræðismaður fær umboðsskjal,
8