Skírnir - 01.01.1943, Page 118
116
Agnar Kl. Jónsson
Skírnir
sérréttindi, en þrátt fyrir hina opinberu stöðu ræðis-
manna hafa þó alþjóðalög ekki viðurkennt nein sérrétt-
indi þeim til handa, er máli skipta. Þó njóta þeir sérstakr-
ar verndar, er meðal annars kemur fram í því, að þeir
verða ef til vill ekki ákærðir nema fyrir meiri háttar af-
brot, sem þeir kunna að drýgja. Þessi vernd kemur ekki
til greina um kjörræðismenn.
Enda þótt svo sé að ræðismönnum búið að þjóðarétti,
eins og nú var frá skýrt, njóta þeir þó engu að síður að
jafnaði ýmissa sérréttinda. I samningum milli flestra
ríkja um gagnkvæm viðskipti og vináttu eru yfirleitt
ákvæði um ýmis konar réttindi og fríðindi til handa ræðis-
mönnum samningsaðilanna hvors hjá öðrum. Þannig er
oft ákveðið, að útsendir ræðismenn skuli njóta skatt- og
tollfrelsis, en það nær þó ekki til fasteigna og atvinnu-
reksturs. Slík réttindi sem þessi eru aldrei veitt kjör-
ræðismönnum. Þá er skjalasafn ræðismannsins að jafn-
aði í samningum undanþegið leit eða töku, og ræðismanns-
skrifstofur og ræðismannsbústaðir njóta þeirrar verndar,
að lögreglunni er óheimil innganga þar, nema samþykki
ræðismanns komi til. Ræðismaður má þá að sjálfsögðu
ekki misnota þessi réttindi, t. d. með því að neita að af-
henda afbrotamann, sem kann að hafa leitað skjóls í híbýl-
um hans. Þá heimilast ræðismönnum enn fremur að hafa
skjaldarmerki sendiríkisins fest á húshlið hjá sér og
flagga með fána þess.
1 sambandi við það, sem nú var sagt um réttindi og
skyldur ræðismanna, má geta þess, að þegar hinn fyrsti
erlendi ræðismaður var útnefndur til íslands (Thomas
Reynolds sem brezkur ræðismaður) segir svo í kgsbr. 28.
okt. 1817 um stöðu hans: „ . . . at han, efter den overalt
saavel som stedse indförte Brug, for sin Person, í Hense-
ende til det, der angaar hans Consulat-Forretninger, skal
være fri for den herværende Jurisdiction og nyde alle de
hans Betjening tilkommende Fortrin, Privilegier og Fri-
heder, men at han derimod, naar han besidder Huse og
Eiendomme i Vort Rige og Vore Lande, skal være pligtig