Skírnir - 01.01.1943, Side 121
Skírnir
Ræðismenn
119
það þá þegar hafizt handa og reynt að afstýra þeim, en
oft er aðstaðan til slíks betri, áður en endanlega er gengið
frá málinu en eftir að ráðstafanirnar eru komnar í fram-
kvæmd.
Auk ráðstafana ríkisvaldsins viðvíkjandi fjárhagsleg-
um málefnum ber ræðismanni líka að fylgjast með og
senda skýrslur um fjárhagsmálefni almennt, eins og pen-
ingamál og lánsskilyrði, þróun einstakra atvinnugreina,
verzlunina almennt, verzlunartízku, verzlunarjöfnuðinn og
verzlunina milli sendi- og dvalarríkisins. Hagskýrslur um
þessi málefni eru að sjálfsögðu mjög mikilvægar.
Það er mjög þýðingarmikið, að ræðismaður sé kunn-
ugur allri útflutningsverzlun sendiríkisins. Eitt af helztu
verkefnum hans er að vekja áhuga fyrir afurðum heima-
landsins og reyna að efla sölu þeirra. Þetta starf hans mið-
ast ekki eingöngu við það að láta sem beztar og ítarleg-
astar upplýsingar í té, sem svar við fyrirspurnum, heldur
skal hann líka eftir atvikum reyna að kynna vöruna, koma
henni á nýja markaði, og efla þann markað, sem fyrir er.
Hitt er eigi síður mikilvægt, að hann hafi vakandi auga
á innflutningi, sem fara á til heimalandsins, eða sem því
má að gagni koma. Það er mikils vert fyrir innflytjendur
að hafa vitneskju um það, hvar þeir geta gert hagkvæm-
ust kaup á þeim varningi, sem land þeirra þarfnast. í þess-
ari viðleitni getur ræðismaður orðið að miklu liði með alls
konar ráðleggingar og upplýsingar.
Ræðismaður getur líka með skýrslum sínum greitt mjög
fyrir þessum málefnum. Hann getur í þeim gefið upplýs-
ingar um það, á hvaða tíma árs innflutningur til dvalar-
landsins sé heppilegastur, t. d. vegna neyzlu, ef um mat-
væli er að ræða. Hann getur skýrt frá framleiðslu í land-
inu sjálfu og samkeppnislöndum, og hvaða kröfur séu
gerðar til gæða og umbúða, hvaða tillit þurfi að taka til
flutningserfiðleika, loftslagsbreytinga og margs annars,
og sannarlega er margs að gæta, því að jafnvel miðarnir
þurfa að vera með vissri gerð eða útliti. Það kom fyrir í
Danmörku fyrir nokkrum árum, að Austurlandaþjóð ein