Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 124
122
Agnar Kl. Jónsson
Skírnir
um, að þeir séu ekki beittir órétti, og að málið sé rekið
gegn þeim á lögmætan hátt.
Yfirleitt má segja, að ræðismanni sé skylt að leiðbeina
ríkisborgurum, aðstoða þá og vernda eftir beztu getu í
öllum vandamálum, sem fyrir þá koma erlendis.
Þá er ræðismönnum, aðallega þó útsendum ræðismönn-
um, veitt notarialvald, það er sams konar vald og notario
publico í heimaríkinu. Þetta hefir aðallega þýðingu um
ýmsa löggerninga, eins og t. d. vottorð í sambandi við
erfðaskrár, staðfestingar á undirskriftum manna, skýrslu-
tökur og útgáfur vottorða.
Ræðismaður er bundinn þagnarskyldu um öll störf sín.
Við það, sem hér hefir verið talið, má bæta því, að ræðis-
menn verða yfirleitt að vera við því búnir að svara alls
konar og ólíkustu spurningum um land það og þjóð, sem
þeir eru fulltrúar fyrir. Eru slíkum fyrirspurnum yfir-
leitt engin takmörk sett (sá, sem þetta ritar, var t. d. einu
sinni beðinn að gefa upplýsingar um, hvernig „Faðir-
vorið“ væri á íslenzku), og það liggur í augum uppi, að
það getur haft talsverða þýðingu frá landkynningarsjón-
armiði, að fyrirspurnum, sem þannig berast, sé svarað af
alúð og kostgæfni, og það ekki síður þótt fyrirspyrjendur
séu kannske skólabörn. Gott handbókasafn er mjög nauð-
synlegt fyrir ræðismanninn í starfi hans.
Þótt hér að framan hafi verið farið fljótt yfir sögu og
aðeins drepið lauslega á hið helzta af störfum ræðismanna,
verður þó ljóst af þessu yfirliti, hve margþætt þau eru.
Það verður þá líka greinilegt, hve þýðingarmikill þáttur
í alþjóðaviðskiptum starfsemi ræðismanna er nú á tímum.
Að því er Island snertir, er öll þessi starfsemi í byrjun,
en mjór er mikils vísir, og ekki er að efa, að íslenzkar ræð-
ismannsskrifstofur eiga eftir að vinna merkilegt starf í
þágu íslenzkra viðskipta við umheiminn. Á það mun verða
lögð áherzla á næstu árum að tryggja og treysta viðskipta-
og vináttuböndin við allar þær þjóðir, sem íslandi er hag-
ur að skipta við. Það er vafalaust, að íslenzkar ræðis-