Skírnir - 01.01.1943, Síða 153
Skírnir
Davíð konungur
151
Þá sitja þeir veizlu í búgarði Absalóms alllangt frá Jerú-
salem bræður hans, og Amnon meðal þeirra. Konungur
heima í Jerúsalem. Loks gefst Absalóm færi og lætur vega
Amnon til hefnda fyrir systur sína. Þegar Davíð fær
fregnina, verður hann lostinn ógurlegum harmi, en Absa-
lóm sér þann kost vænstan að flýja sem skjótast norður
til afa síns í Gesúr. Þar verður hann að dveljast í þrjú ár
útlagi föður síns. Þá fær hann að koma aftur í landið fyrir
bænarstað Jóabs. En fyrir augu Davíðs má hann ekki
koma. Líða svo enn tvö ár, og má ætla, að við allt þetta
hafi sonarást Absalóms kulnað út gersamlega. Hann lifir
í kyrrþey á heimili sínu. Synir hans eru þrír og ein dóttir,
Tamar, fríð sýnum. Að síðustu gerir hann föður sínum
orð, að hann vilji koma á fund hans: „Sé ég sekur, þá
drepi hann mig“. Davíð leyfir honum það, og eru nú
sáttir að kalla.
VII.
Þegar hér er komið sögu, hefir Davíð konungur þrjá
um sextugt og er nokkuð tekinn að mæðast. Elztu synir
hans tveir eru dánir. Absalóm var hinn þriðji í röðinni,
og þykir nú líklegastur til ríkiserfða. Hann er nær þrítugu
og vinsæll af þjóðinni, sem virðist hafa tekið vægar á
blóðhefnd hans en Davíð. Metnaður hans er ríkur sem
föður hans, og þykir honum langt að bíða dauða hans og
óvíst, nema hann kunni að ætla öðrum ríkið. Fyrir því
ræður hann ráðum sínum af mikilli leynd og þrautseigju
og hyggst að steypa föður sínum af stóli. Ekki er fullljóst
um alla ráðagerð hans, og má undarlegt þykja, að Davíð
skyldi ekki fastari í sessi eftir jafn-glæsilegan valdaferil
um fjölda ára. Absalóm bendir á það, sem helzt er áfátt í
stjórn hans, dómgæzluna, og vekur traust manna á því,
að um muni skipta, er hann sjálfur taki við. Jafnframt
hrífur hann fjölmarga með ástúð sinni og glæsimennsku.
Hann leitar samstarfs við Akítófel, hinn kæna ráðherra
Davíðs, og þeir fá í lið með sér þá, er mislíkar við Davíð.
Fremstir í flokki munu þar vera vinir ættar Sáls, og