Skírnir - 01.01.1943, Qupperneq 197
Skírnir
Ritfregnir
195
þarna prentaðar 28 slíkar myndir eftir íslendinga, þar af 2 upp-
hafsstafir úr „fsl. fornritum". Myndirnar eru eftir Guðmund Thor-
steinsson (2), Tryggva Magnússon (11), Finn Jónsson (2), Björn
Björnsson (5), Jóhann Briem (2), Halldór Pétursson (2), Atla Má
(1), Barböru Árnason (2), Baldvin Björnsson (1). Virðist höf.
þessi grein listarinnar hjá oss eftir vonum, svo ung sem hún er, og
gefa allgóðar vonir um framtiðina.
Önnur ritgerðin er urn íslenzk bókaheiti, myndun þeirra og upp-
nefni á bókum. Er það fróðlegt og skemmtilegt efni og kemur þar
margt smáskrítið fyrir, svo sem uppnefnin Grútarbiblía (vegna
prentvillunnar harmagrútur fyrir harmagrátur), Bangi Ponti,
Tossakverið, Prestavilla, Leirgerður, Kleyfsi (af latneska orðinu
n u c 1 e u s = kjarni og bendingu til orðsins k 1 a u f i), Tólffiska-
kverið, Fjárlögin, Sönglagasafn með myndum af kindum á káp-
unni). — Loks er sýnt, hvernig nöfn úr norrænni goðafræði hafa
verið höfð á tímarit á Norðurlöndum, Þýzkalandi og íslandi, og
kemur í Ijós, að um 50 íslenzk blöð og tímarit hafa sótt nöfn sín
þangað. Var Skírnir fyrsta nafnið og hefir orðið langlífast.
Þriðja ritgerðin er um þýðingar á islenzku frá upphafi, sérstak-
lega á veraldlegum bókum. Er þar drepið á merkilegan þátt ís-
lenzkrar bókmenntasögu, sem vert væri að taka upp til gagngerðrar
rannsóknar, því að þýðingarnar sýna eigi aðeins andleg viðskipti
þjóðar vorrar við aðrar þjóðir á umliðnum öldum, heldur hafa þær
frá upphafi vega ráðið miklu um ástand og þróun málsins á hverj-
um tima og haft mikil áhrif á málfarið, bæði til góðs og ills.
Síðasta ritgerðin er viðaukar við hinar ágætu skrár höf. um
íslenzkar bækur á 16. og 17. öld og endar á skrá í áraröð yfir ís-
lenzkar bækur 17. aldar. Er hún einkar hentug fyrir íslenzka bóka-
safnara. í inngangsorðum víkur höf. að spurningunni um guð-
spjallaútgáfu Jóns biskups Arasonar. — Loks er nafnaskrá. Að öllu
er bókin þörf og skemmtileg. G. F.
Cornell University Library. Catalogue of tbe Icelandic Collection,
bequeathed by Willard Fiske. Additions 1927—42. Compiled by
Halldór Hermannsson. Ithaca N.Y. 1943. 4to, IX+295 bls.
Fyrsta bindi þessarar miklu skrár kom út 1914. Það er xii+755
bls. 4to, og voru þar skráð 10200 bindi, en það var bókaeign Fiske-
safns þá, að undanteknum um 500 bindum um rúnir, er prófessor
Halldór Hermannsson geymdi sérstakri skrá, sem kom út 1918.
Árið 1927 kom svo út viðauki fyrir árin 1913—26, vii (2)+284
bls. 4to, og loks þetta síðasta bindi, er sýnir viðaukann árin 1927—
42. Hafa á þessum árum bætzt við safnið um 5000 rit, svo að nú
eru 21830 alls í safninu. Hefir þó, eins og höf. skýrir frá, ekki verið
nægilegt fé til að kaupa allt, sem út hefir komið af því, sem safnið
13*