Skírnir - 01.01.1872, Page 151
DANMÖKK.
151
„frelsi hugsunarinnar“, afneita allri opinberan og segja, aS það
eitt verði fnndið af dýrraætum æðri sanninda, sera mennirnir
leiti að af öllum andans kröptum. það eru ungir fræðiraenn —
og meðal þeirra eigi fáir kandidatar í guðfræði(!) — sem hjer
hafa bundið lag sitt, og halda út nýju mánaðarriti (Nyt dansk
Maanedsskrift). Fremstur er hjer í flokki sá maður, er dr. Bran-
des heitir (Gyðingur að ætt|. Hann er ágæta vel fróður, lipur
í máli og hugsar glöggt — en virðist hafa samið sig mest eptir
frakkneskum rithöfundum. Hann hjelt í vetur fyrirlestra um
bókraenntalíf Evrópu á þessari öld, og varð hjer eigi að eins
nærgöngull allri kirkjutrú, en jþótti gera allt of iítið úr bók-
menntum Dana — einkanlega á seinni tímum. J>egar fyrirlestr-
arnir (eða íyrsti partur þeirra, er hann ætiaði að halda) voru
komnir á prent, íóru biöðin móti þeim og höfundinum í miklum
móði. Meðal þeirra, er hjer hlutuðust til, var Monrad biskup.
Að því vjer berum skyn á, þá urðu þeir allir heldur hraktir af
Brandes, þó að stöku atriðum væri rjett fundið. — Gísli Brynj-
úlfsson heidur áfram þeim fyrirlestrum, sem hann byrjaði um
haustið 18*0, um „stjórnarsögu íslands frá fornöld11; en hann
befir dregið inn í það efni allt fornaldarlifið eða bugariíf norð-
uriandabúa á fyrri öldum, og jafnvel enum elztu, er sögurnar eiga
við, og rakið til þess atburði, lög og þjóðhætti. J>að var gleymska
vor, er þeirra var eigi getið í fyrra. Johnstrup prófessor hjelt
nokkra fyrirlestra í vetur um jarðveg og jarðargróða á íslandi,
og voru þeir afar fróðlegir. Hann minntist á í enum fyrsta,
hvernig allt líf og gróði ætti bjer í ströngu að stríða, og hvernig
stríðleikurinn í náttúrunni virtist hafa færzt inn í skap Islendinga.
Síðar sýndi hann, hvernig nýr jarðvegur væri að myndast á
mörgum stöðum, þar sem vötn og jökulburður spilltu enum fyrra.
Hann talaði um hina miklu vanrækt og vanyrking iandsins, en
vildi heldur kenna hjer um dáðleysi Islendinga, en þeim kjörum,
er þeim hafa verið búin af öðrum. Hann lofaði jafnvel tiiraunir
og framlög stjórnarinuar til að bæta jarðarræktina á Islandi.
Annars var hann á því, að landið gæti borið helmingi fleira fólk,
en þar nú væri. — Geta má um vel skrifaðan bækling, eptir C.