Skírnir - 01.01.1872, Síða 165
BANDABÍKIN.
165
hva8 eptir annaS ná8 embættunura í borgarstjórninni, og dregiS
svo fje borgarinnar í sjóS sinn, aS milljónum skiptir SíSan 1869
hafa skuldir borgarinnar aukizt um 14 milljónir dolla’ra, og eru þó
tekjurnar 4 mill. á ári. Eitt af £ví, sem stendur á útgjaldalistanum,
er nýr húsbúnaSur til ráShússins og annara húsa bæjarstjórnar-
innar, og eiga í þaS aS hafa gengiS 5 mill. dollara. Borgarbúar
kusu 70 menn í nefnd til aS rannsaka öll þau misferli, sem orSiS
hefSu, og hafa tilsjón meS högum bæjarins, en fylkisstjóranum er
boSiS aS halda lögsóknum fram. Öll blöSin i Newyork kváSu
upp áfellisdóm í einu hljóSi um aSferS borgarstjórnarinnar, en
þaS þykjast menn t>ó vita, aS örSugt muni aS komast fyrir mart
og aS gera þessa menn svo aS íijófum og ræningjum í dómi, sem
þeir sje þa8 í raun og veru* 1. Líkt brennur og víSar viS í um-
') |>eir eru sllir sttírauíiugir og, sem flestir embættismenn borgarinnar
(dómarar og svo frv.), komnir aí> virbíng og rábum úr því fjelagi, er
■ Tammanjhringurinn« heitir. jþar heflr hver svarih, að veita öbrum
fulltingi til ab ná fjárráðum og embættum borgarinnar. Við þetta ,■
fjelag batt lag sitt maður, er nýlega heflr verib drepinn, James Fisk
ab nafni. Fisk var ekki meir en um þrítugt, og hafði í æsku mokab
fltír föbur síns, en hann fór með varning um sveitir. Nú hafbi þessi
maður rakab þeim auði saman, að þab þótti með fádæmum — og þaf>
i Ameriku! Grtíhinn var og fenginn með þcim brögðum og ósvífni, að
öllum heflr blöskrað — og það líka í Ameríku! Hann hafði eignazt
mestan hluta í járnbraut, er Eriebraut heitir (frá Newyork vestur ab
Erievatni), og vjelaði svo um hlutabrjefln, af) opt þtítti, sem hann
mundi þá leife draga undir sig allt gull ög silfur í Vesturálfu. Fyrir
nokkrum árum kom hann kaupum símim svo vib i kaupmannasam-
kundunni (i Newyork), að þurður varð á gullinu, og græddi við það
10 mill dollara á tveimur eba þremur dögum. En það sem að hon-
um og hans kompánum rakaðist þá daga, hlaut af öðrum ab ganga,
og urbu þar margar þúsundir manna snauðir eða öreiga, sem áhur
áttu mikið til. James Fisk var næstum án allrar menntunar og kunni
ekki ab rita rjett mál, en kaupabrögðin hafbi hann numið í æsku af
föður sinum. Einusinni haffei gömul kona keypt klút af karlinum, og
sagði Kaupahjeðni hinum ýngra, að faðir hans hefði svikið sig. Hann
hugði að klútnum og spurði, hvab hann hefbi kostað. «Skilding (= */8
dollars)» sagði konan. .Klúturinn er tísvikinn., sagði Fisk, .og fyrir
einn skilding segir faðir minn ekki ósatt, en fyrir einn dollar gerir hann
það átta sinnum.. — Sögurnar af viðhöfn, sællífl og óhófl þessa