Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1912, Side 53

Skírnir - 01.04.1912, Side 53
Sióður Margrótar Lehmann-Filhés. Marga trygga vini hafa íslenzkar bókmentir getið sér meðal erlendra þjóða, menn sem hafa unnað þeim hug- ástum og helgað þeim starf sitt. Er það eitt happ meðal annara, sem okkar fámennu þjóð hlýzt af þessum dýr- mætu fjársjóðum sínum, til þroska og sæmdarauka. Einn þessara góðvina íslenzkrar menningar og þjóð- ernis var frk. Margarethe Lehmann-Filhés, er andaðist í Berlin 17. ágúst siðastliðið sumar, nafnkunn lærdómskona og rithöfundur, af göfugum þýzkum ættum (fædd 1852). Faðir hennar var prófessor Rudolf Lehmann (d. 1875) og móðir Bertha Filhés skáldkona (d. 1905). Bróðir hennar er próf. dr. phil. Rudolf Lehmann-Filhés, merkur stærð- fræðingur og stjörnufræðingur. Þegar frá barnæsku stundaði frk. M. Lehmann-Filhés vísindanám af kappi, einkum stærðfræði og málfræði. Snemma hneigðist hún að norrænum bókmentum, og á efri árum var hugur hennar allur og óskiftur i íslenzkum þjóðfræðum. Svo vel varð hún að sér í nútíðarmáli vor íslendinga, að hún bæði talaði það og ritaði. Má sjá þess ljósan vott á ritgerð hennar um islenzkan spjaldvefnað i Eimr. 1898. Til dæmis um starf hennar i þá átt að efla þekkingu erlendra þjóða á íslenzkum fræðum og bera heiður þeirra út yfir haflð, má geta geta þess, að hún þýddi og gaf út úrval af þjóðsögum Jóns Árnasonar, úr- val íslenzkra ljóða og ýmsar ritgerðir þjóðfræðilegs efnis eftir íslenzka höfunda, auk þess sem hún frumsamdi margt um þá hluti. Merkast þess er bók hennar um íslenzkan spjaldvefnað (Ueber Brettclienweberei, Berlín 1901). Um

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.