Norðurljósið - 01.01.1969, Page 101
NORÐURLJÓSIÐ
101
hans til Föðurins var ekki sú, að lærisveinar hans væru „teknir úr
heiminum,“ heldur að þeir séu „varðveittir frá illu.“ Hann veitir
þeim, sem þannig er ástatt fyrir, nógan styrk og andlegan þrótt til
þess að halda sér hreinum. En hinn trúaði má ekki „eiga hliU í verk-
um myrkursins, sem ekkert gott hlýzt af, heldur fletta miklu fremur
ofan af þeim.“ (Efes. 5. 11.)
En ef ihann skyldi fara af eigin hvötum þangað, sem hann veit, að
meistari hans, Kristur, er ekki í neinum heiðri hafður, til þess að
afla sér fjár eða til að skemmta sér, eða af öðrum slíkum hvötum,
þá má hann alls ekki ætla, að Drottinn fari með honum til að varð-
veita og styrkja hann. Drottinn Jesús styrkir engan til þess að ó-
hlýðnast Föðurnum; hann er honum ævinlega trúr.
Ef einhver þykist ekki þurfa að gæta slrkrar varúðar, þykist „geta
verið jafn sannkristinn, þótt hann taki sig ekki út úr öllu,“ eins
og menn segja, þá er hætt við því, að andlegur hroki hafi náð fót-
festu í sálu hans. — Hann gæti sín, að hann falli ekki! Þegar Pétur
sat meðal þeirra, sem fyrirlitu Krist, og lét sem hann væri einn
þeirra, — þá féll hann. „Sæll er sá maður, sem eigi fer að ráðum
óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna O'g eigi situr í hóp háð-
gjarnra.“ (Sálm. 1. 1.)
„Gangið ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum; því að hvað
er sameiginlegt með réttlæti og ranglæti? Eða hvaða samfélag hef-
ir Ijós við myrkur? .. . Hver hlutdeild er trúuðum með vantrúuð-
um? ... Þess vegna farið burt frá þeim, og skiljið yður frá þeim,
segir Drottinn.“ (2. Kor. 6. 14.—17.)
Eiga lærisveinar Krists að hlýðnast þessu eða eigi? Það er ekki
nema eitt svar: „Hví kallið þér mig herra, herra, og gerið ekki það,
sem ég segi?“ (Lúk. 6. 46.)
Guð bannaði ísrael stranglega, að hafa nokkur mök við ná-
grannaþjóðirnar. Hann vildi ekki láta lýð sinn taka upp þær viður-
styggðir, sem hinar þjóðirnar frömdu. ísrael hlýðnaðist ekki, og
Drottinn hlaut þá að hegna þjóðinni með því að láta flytja hana
hertekna í fjarlægt land. Hver, sem les gamla testamentið, getur séð,
að þetta var orsök herleiðingar Israels.
Jósafat Júdakonungur fór í herferð með óguðlegum konungi,
Akab. Þegar hann kom heim, mætti honum spámaður Drottins og
mælti: „Hjálpar þú hinum óguðlega og elskar þú þá, er hata Drott-
in? Sakir þessa liggur á þér reiði Drottins.“ (2. Kron. 19. 1., 2.)