Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1988, Page 106

Andvari - 01.01.1988, Page 106
104 DAGNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR ANDVARI mótsögn kærleikans, það að leita svo ástríðufullt að samruna við þann sem elskaður er, en vita innst inni að sá samruni er óhugsandi öðru vísi en sem blekking eða geðveiki. Myndinni af gömlu hjónunum fylgir sorg en í næsta skipti sem móðirin hvolfist yfir Dís/Gunnlöðu með umvandanir blandnar sjálfsréttlætingum og sjálfshafningu gerist þetta: ... mér var ekki nokkur leið að þagna ... ég vildi bara sjá til þess að þú gætir bjargað þér í lífinu áfallalaust... og giftist almennilegum manni. Og yrðir hamingjusöm í þessu lífi... yrðir hamingjusöm . .. rödd mín var orðin loðin af þoku .. . eins og í segulbandi undan kodda heyrði ég ávæning af þessari þulu og var sjálf hætt að skilja hana. Eiginlega var hún aö drepa mig úr leiðindum. Það var ekki ég sem samdi hana enda hafði ég ekki lengur vald á henni. Þulan hafði náð valdi á mér og bærði varirnar á mér endalaust eins og vél sem ég kunni ekki að stöðva . . . Það var ekki einu sinni mín eigin rödd lengur . . það var hljómur margra radda . . . misgamalla . . . (109) Það er samfélag og siðvenja sem tala gegnum móðurina og hún veit það. Hvar er hennar rödd? Leit móðurinnar að sinni eigin rödd hlýtur að leiða hana bæði gegnum ást og hatur. Eftir að hafa upplifað sitt eigið tóma orð á þennan hátt, kemur bakslag í sjálfsgreiningu móðurinnar og svo brýst reiði hennar fram; öskureið og árásargjörn rífur hún dúkana úr veitingahúsi Önnu og þvær úr þeim skítinn og óhroðann um leið og hún veitir útrás reiði sinni og heift í garð Dísar/Gunnlaöar og hinnar montnu Urðar og hugsar þeim þegjandi þörfina. Eftir þessa húsmóðurlegu hreinsun eða skírslu, er hún tilbúin til að halda áfram, hún getur stigið niður og farið í sína ferð gegnum undirheimana eins og Óðinn, til að skilja aðskilnaðinn og dauðann. Fiskurinn fylgir henni og hún ferðast frá hinu „eðlilega” götulífi gegnurn innflytjendahverfi þar sem framandlegt fólk stendur í hópum og horfir á hana sem aðskotahlut. Út úr þessu jaðarsvæði samfélagsins liggur leiðin inn á þriðja ogsíðasta svæðiðþar sem ryk ogskíturfjúka um auða götuna. Þarna er þó fólk, stundum tveir og tveir saman, en þó eru allir einir, einangraðir í eigin heimi, eigin veruleika. Og þarna sér hún madonnuna, ungan eiturlyfjaneytanda með nýfætt barn á horuðum brjóstum sínum og barnið „tottaði öðru hvoru máttleysislega líkt og það væri að sjúga í sig meiri svefn.“(124) Þessi hryllilega helgimynd lýstur móðurina eins og „högg fyrir bringspalirnar". Myndin af svipbrigðalausri madonnunni með barnið — merkt svefninum, tómlætinu, dauðanum. Þetta er samfélagið sem hún hefur varið í rifrildum þeirra Dísar og móðirin unga er ekki „Mater dolorosa“, það er engin þjáning af því það er engin trú á lífið eða ástina, hvort tveggja hefur verið afskrifað. Móðirin er komin þangað í ferð sinni að saga Dísar/Gunnlaðar af ástum þeirra Loka fær djúpa merkingu fyrir henni. Loki hefur ákallað Gunnlöðu, í nafni ástar þeirra; hann kallar á hana í örvæntingu sinni og ótta og biður hana
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.