Saga - 1961, Qupperneq 128
302
HERMANN PÁLSSON
er engin önnur heimild til. Tímans vegna fær tilgátan vel
staðizt. Hallgerður mun hafa verið miklu yngri en Brand-
ur bróðir hennar, og það mun láta nærri, að þeir Guð-
mundur prestur, sem lézt árið 1151, og Halldór, afi Hjör-
leifs, hafi verið uppi um svipað leyti. Sama máli gegnir
um Magnús prest og Yngvildi, móður Hjörleifs. Hjörleif-
ur virðist vera fæddur einhvern tíma um 1160—70.
Þótt þess sé ekki getið í Landnámu, að þeir Hjörleifur
og Aron hafi verið komnir af Brandi Gíslasyni, verður
ekkert af slíkri þögn ráðið. Þeir feðgarnir í Hjarðarholti,
Guðmundur og Magnús, báru svo langt af öðrum kvistum
á þeim ættarmeiði. Guðmundur Brandsson var einhver
glæsilegasti klerkur landsins á sinni tíð, svo að til mála
kom, að hann yrði kosinn til biskups. Hins vegar fara eng-
ar sögur af Halldóri Brandssyni, fyrr en honum skýtur
upp í ættartölu Hjörleifs Gilssonar löngu síðar, og gæti
hann af þeim sökum verið bróðir Guðmundar í Hjarðar-
holti.
Auðséð er, hvað vakir fyrir höfundi Arons sögu með
ættartölunni til Brands örva. Brandur er glæsilegur hirð-
maður. Hann kemur til hirðar ólafs Tryggvasonar á síð-
ustu árum 10. aldar, og síðar er hann við hirð ólafs helga
og loks við hirð Haralds harðráða. Og örlæti Brands við
þá Isleif biskup og Harald konung er einstakt, enda mun
frægð hans einkum stafa af því. I Brands þætti örva segir
svo, að Þjóðólfur skáld hafi talið Brand manna bezt til
konungs fallinn á íslandi fyrir sakar örleika hans og stór-
mennsku. Höfundi Arons sögu, sem auðsæilega er kon-
ungssinni, hefur fallið þetta vel í geð. Þótt Aroni auðnað-
ist ekki að sækja heim hirðir þriggja konunga, svo að vit-
að sé, eins og Brandi örva frænda hans, var hann þó að
því leyti honum fremri, að hann dvaldist um þrjátíu ár
við hirð Hákonar gamla. Og þótt Arons saga sýni ekki, að
hann hafi verið jafnörlátur og Brandur, átti hann þó til
að bera mikið veglyndi, eins og fram kemur í viðskiptum
hans við Þórð kakala úti í Noregi.