Saga - 1961, Page 161
TRÚ Á HRJÓSTURVÍDD OG ÚTILEGUMENN 335
kalla sig þjóð? — 0g ofan í kaupið svo frjálsa þjóð, þvert
ofan í lög, að hún væri á frönsku ekki bara „peuple", held-
ur „nation“ og stefndi samkvæmt því eðli sínu að sjálfs-
forræði! Á sama tíma viðurkenndu menn í Evrópu engin
smærri þjóðríki en Grikkland og að nokkru leyti norskt
þjóðland með tilkalli til sjálfræðis innan Svíaveldis. Paul
Gaimard var þegn 34 milljóna þjóðar. Þá voru íslending-
ar að tölu eins og 600. hluti Frakka. Nú eru þleir að tölu
Rærri eins og 600. hluti af samlögðum íbúum Frakklands,
Niðurlanda og Sambandsríkisins Þýzkalands, en þó hefur
sj álfstæðisaðstaðan gagnvart Evrópu batnað tiltölulega
Weir að öðru leyti.
Gengisfáll mikilfengleiks sídan 1858.
Að fengnu sjálfstæði og atvinnublómgun höfum við efni
á því 1962 að rifja upp, hve margar af þeim ástríðum og
röksemdum, sem virkar voru í viðreisnarbaráttu á ýms-
Um mannsöldrum, eru nú horfnar eða léttvægar fundnar.
Hér er fengizt við no'kkra þá þræði í glitvef sögunnar og
þóttu enn góðir þræðir í bernsku minni fyrir norðan. Nú
er ekkert frelsisafl fólgið lengur í hálfgerðu hirðingja-
þjóðaruppeldi og reikun ungs fólks milli landshluta; kaup-
staðamenning tekur við aðalábyrgð á sjálfstæðinu. Óþol
&egn yfirvöldum og þar af leiðandi hatur á höftum mun
Segna öðrum hlutverkum og ósambærilegum við þau, sem
voru á dögum Skúla fógeta, Jóns Sigurðssonar og að ýmsu
leyti enn á fyrri helmingi 20. aldar. Fordæmi Fjalla-Ey-
vindar var hætt að verka á 19. öld, og fyrst að því loknu
Var unnt að hefja hann í sama þjóðhetjuflokk og Hörð
órímkelsson eða Gretti og beita þeim í skáldskap til auk-
ms harmsöguskilnings og mildunar á réttarfari. Að nýjum
árangri fengnum í þeim efnum eru sakamannanöfn þessi
®tt að ýta við samvizku þjóðar eins og þau gerðu. Jafn-
^ tröllúðgur Skugga-Sveinn, „útskúfaður öllum frá“,
eldur engri mannfélagslegri frummerkingu sinni úr leik-