Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Side 10

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Side 10
Tímarit Mdls og menningar Jón fordæmi fyrirrennara sinna á Hafnarslóð í því að hugur hans er gjarn á að leita heim í skáldskapnum, eins og glöggt kemur fram í kvæðinu I vor- þeynum sem sver sig mjög í ætt við hafnaríslensk föðurlandsljóð frá fyrri tímum, þegar samgöngur við gamla landið voru enn strjálar og dagblöðin íslensku ekki til sölu á brautarstöðinni. En þótt okkur heimamönnum sé orðið tamast að sjá þessi hafnaríslensku skáld fyrir okkur sem óhuggandi af heimþrá og í öngum sínum í Hafnar gufu, felandi þýðum sunnanvindum kveðju sína heim til fósturlandsins góða, hefur þeim sem betur fer einnig orðið nokkuð tíðlitið í suðurátt og hafa engan veginn verið ónæmir fyrir þeim vindum sem þaðan blésu. Að þessu leyti er Jón Helgason engin und- antekning, þótt hann hafi síður hirt um það en fyrirrennarar hans á nítjándu öld, að henda á lofti það sem nýstárlegast þótti og samtímalegast af því sem að sunnan kom, heldur sótt feng sinn fremur í forðabúr liðinna alda. Hér kemur auðvitað orðið fræðimennska upp í hugann, nema menn kannski geri sér grein fyrir því að það sem lengi hefur megnað að standast tímans tönn er sítímabært og hlýtur að varða allar kynsióðir mennskra manna, hvaða merki svo sem tískan býður þeim að játast undir. En sá sem hyggst gera úttekt á þýðingarstarfi Jóns Helgasonar rekur sig fljótt á það að niðurröðun þýddra kvæða í hinni nýju Kvæðaútgáfu er í hæsta máta handahófskennd. Að vísu er þar stuðst við sömu röð og er í áð- ur útgefnum bókum hans, en í einskonar heildarútgáfu sem þessari hefði verið ástæða til að stokka þau upp á nýtt. Þessi ruglingslega niðurröðun er þó engin afsökun fyrir okkur hér að taka ekki kvæðin fyrir í skipulegri röð, þótt það liggi kannski ekki beint fyrir, hver sú röð eigi að vera. Hér mætti til dæmis hugsanlega viðhafa skiptinguna milli „alvarlegra“ kvæða og „gamankvæða“, þar sem meðal þýddra kvæða eru jafnt ljóð af guðrækileg- um toga og raunatölur um þessa heims fallvelti annars vegar sem og glettnir gluntasöngvar og háðkvæði hins vegar, en einnig kæmi til greina skipting eftir tungumálum, þar sem þýtt er úr latínu, frönsku, þýsku, ensku og norðurlandamálum. Að athuguðu máli virðist affarasælast að leggja skipt- ingu eftir tímaröð og tímabilum til grundvallar, þótt hin sjónarmiðin verði látin gilda að einhverju leyti. Ef við nú sem sagt höfum tímaröðina að leiðarljósi, verður fyrst fyrir okkur kvæði sem stendur nokkuð sér og sker sig úr að því leyti að það er ort löngu fyrir Krists burð og langt utan okkar menningarsvæðis, en það er brot úr Rigveda-kvæðinu indverska, nánar tiltekið það sem fjallar um upp- tök tilverunnar og er númer X 129. I athugasemdum með þýðingunni er þess getið að hún sé ekki gerð eftir frumtexta heldur rímaðri þýðingu á þýsku og lesandi raunar varaður við að treysta á nákvæmni hennar, enda mundi höfundurinn vart þekkja í henni sitt eigið afkvæmi. Þetta ber keim 264
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.