Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Qupperneq 79

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Qupperneq 79
Skáldkona á tímamótum en fléttaður saman úr ótal sambærilegum atvikum sem kallast á, undir- byggja það sem koma skal og þjóna skopskyni höfundar og tvíræðni, ekki síður en andstæðar og hliðstæðar persónur. Með því að láta sögupersónur verða tvísaga eða neyðast til að skipta um skoðun næst spenna í frásögnina þó að atvikin sem sagt er frá séu yfirleitt hversdagsleg. Lesandinn tekur auðvitað mark á því sem hann les þangað til honum er sýnt fram á að það eigi hann ekki endilega að gera, þá verður hann að fara að vinna sjálfur, endurmeta og draga nýjar ályktanir. Engin ein persóna er ótvíræð málpípa höfundar. Efnamaðurinn Bingley sem frú Bennet fær strax svo góðar vonir um verður líka undir eins hrifinn af Jane, elstu systur Elísabetar, og ástarsaga þeirra virðist ætla að vera af átakaminnstu gerð. Ekki dugar það, en Bing- ley er svo vænn maður að það þarf að undirbúa „svik“ hans vandlega. Strax í 3. kafla dettur frú Bennet í hug að hann sé flautaþyrill sem aldrei tolli neins staðar til lengdar. Og í löngu, upplýsandi samtali á Netherfield í 10. kafla heyrir lesandi ungan, áhrifagjarnan mann lýsa sjálfum sér - án þess að skammast sín nokkuð fyrir það eins og Darcy bendir réttilega á. Hins veg- ar er hneykslun Darcys á ístöðuleysi vinar síns ótímabær, því einmitt þenn- an veikleika hans á hann eftir að notfæra sér til hins ítrasta. Séra Collins hneykslar Elísabet meira en frá verður sagt þegar hann segir henni að það sé ekkert að marka þótt hún neiti nonum í fyrsta skipti sem hann biður hennar. Stundum neita konur biðli jafnvel tvisvar eða þrisvar, segir hann, það er í samræmi við viðkvæmt kveneðlið og ber að líta á sem uppörvun. Elísabet finnst þetta að vonum benda til þess að hann hlusti ekki á hana í alvöru. „Ef þér takið orð mín fram að þessu sem hvatningu þá veit ég ekki hvernig ég á að orða neitun mína þannig að þér trúið mér,“ hrópar hún upp yfir sig. Seinna er það svo hún sem vonar af öllu hjarta að annar biðill ítreki bónorð sitt! Lafði Catherine de Bourgh er sárhneyksluð á menntunarskorti Bennet- systra, en svo kemur í ljós að hvorki hún né dóttir hennar hafa menntunina sem hún ætlast til af öðrum. Ungfrú Bingley hefur líka stór orð um hvað kona þurfi að hafa til að bera til að teljast vel menntuð en getur svo sjálf ekki lesið bók án þess að drepast úr leiðindum. Mörg önnur dæmi mætti nefna um mun á orðum persóna og gerðum, andstæður og hliðstæður í hegðun og tali sem bera söguna áfram og halda lesanda við efnið án þess að honum sé nokkurn tíma sagt hvað honum eigi að finnast. Við getum aldrei treyst því að neinn hafi rétt fyrir sér - það ger- ir söguna svo óvænta! Hjónabönd eru mikið áhugamál höfundar og einnig þar setur hún upp andstæður og hliðstæður. Eins og Charlotta Lucas, vinkona Elísabetar, 333
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.