Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 92

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 92
Tímarit Máls og menningar hafa brotist undan ofríki þeirra táknkerfa sem daglega byrgja okkur sýn og breyta nánasta umhverfi í safn notagilda eða tækja. Textar af þessu tagi ein- kennast af því að nálægðarvensl eru þanin til hins ýtrasta; ferli skapast sem knúið er áfram af skorti, leit að festu: einingu orðs og fyrirbæris, sjálfs og heims. Að því leyti líkjast þessir textar starfsemi hins dulvitaða. Dulvitundin, sagði Jacques Lacan, er líkt og tungumálið samsett úr „tómum“ táknmyndum sem tengst geta fjölda táknmiða, vensl þeirra til- viljunarkennd og síbreytileg13. „Turn“ í draumi er fremur táknmynd en tákn og merkingin breytileg eftir aðstæðum, dulin og tekur sífellt á sig nýj- ar myndir um leið og turnmyndin sjálf tengist breytilegum táknmiðum. Með öðrum orðum: dulvitundin líkist ólæsilegum, síkvikum módernískum texta sem berst gegn túlkun, forðast uppljóstrun. Tungumálið, sagði Jacqu- es Lacan, reynir án afláts að bæta upp skort, svala þrá, og flæðir því áfram eftir leið nafnskipta. Kvikið er veruháttur þess og leiðir af sálrænni reynslu manneskjunnar. I bernsku er henni fleygt úr heimi gnægðar og einingar inn í heim er einkennist af mismun og flokkun, heim tungumálsins. Tal og skrift koma í stað beinnar upplifunar, orðlausrar eignar, návistar. Vitundin heldur tungumálinu að öllum jafnaði í skefjum og festir orð við hluti. Látlaust kvik myndi og rjúfa allt samhengi, gera málleg samskipti ómöguleg, skapa óviðunandi ástand. Nútímahöfundar hafa farið ýmsar leiðir. Sumir stefna úreltri rökhyggju gegn öngþveitinu: skriftin verður að hinu skrifaða, ferlið að afurð, textinn að boði, táknmyndin að heildstæðu tákni: sannleika. Aðrir reyna að laga formsköpun sína að ringulreiðinni. I textum þeirra gegna myndhvörf oft á tíðum meginhlutverki. Þau stöðva skriðið og festa það sem í fyrstu virðist með öllu ófestanlegt. Slík mynd- hvarfahneigð leitar réttlætingar og vits í goðsögulegri myndsköpun sem nú á dögum er eitt af höfuðeinkennum skáldsögunnar. I fjölda nútímaverka eru goðsöguleg minni notuð til að varpa ljósi á samtímann. Þau eru frá- brugðin einangruðum líkingum eða stökum myndhvörfum. Starfa oft sem kenniliðir heillar sögu og ná jafnt yfir heild sem einstaka þætti. I slíkum til- vikum eru þau lykill að merkingu og formgerðarregla. T. S. Eliot sá þróun- ina fyrir á sínum tíma er hann lýsti því yfir í ritdómi um Ulysses eftir James Joyce að tími hinnar goðsögulegu aðferðar væri upp runninn. Frásagnarað- ferð hefðbundinnar skáldsögu ætti ekki við á tímum ringulreiðar, niðurrifs og stjórnleysis, okkar tímum '4. í Ulysses er lýst heimi sem virðist skorta innra samhengi, allt er yfirskyggt af markleysi hvunndagsins, óvissu og fár- ánleika. Engu að síður hefur textinn heildstæða formgerð, fagurfræðilega reglu, sem sótt er til rita Hómers. Lýsing afhelgaðs heims er eins og leyst úr viðjum með vísun til goðsögulegrar veraldar. Lausnin tvíþætt, listræn og andleg í senn. Við skynjum lögmál í óreiðu textans og um leið mennskt 346
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.