Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Síða 103

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Síða 103
Myndir á Sandi í myndhvörfum tvinnast saman táknmið óskyldra fyrirbæra enda not- uðu rómantísk skáld þau til að samsama sjálf og náttúru. Myndhvörf þeirra voru annað og meira en málskrúð. Þau voru forsenda hugsunar fremur en hugsuð merking, grundvöllur skynjunar og þekkingar. Af þeim sökum lifði rómantískur stíll af hnignun rómantískrar heimsmyndar. Menn höfn- uðu hinni hugsuðu orðræðu rómantíkurinnar, hinu skrifaða og lokna, text- um hennar; merkingarmyndunin lifði hins vegar áfram, tungumál stefn- unnar, og inn í okkar tíð til nýs lífs í skáldsögum samtímans. Myndhvörf eru aldrei „saklaust“ listbragð, án undirmála, því að þau fela í sér stjórnun hugsunar eða öllu heldur form hugsunar, tilskipun sem menn eru ósjaldan grunlausir um. Oftast nær gæða þau heiminn jákvæðu sam- hengi en þau geta einnig skilið að, leyst upp, brotið það sem áður var heilt. I seinustu Ijóðum Steingríms Thorsteinssonar birta myndhvörf til dæmis neikvæða samsvörun vitundar og heims. Þeim virðist stefnt gegn róman- tískri heimsmynd: þeirri trú að formgerðir hins mannlega, náttúrlega og guðlega deili örlögum. Rómantísk skáld tjáðu slíka sýn með myndhvörfum eins og sést í fyrri ljóðum Steingríms. Dæmi: Frá stóli nóttin stirnd að storðu skygnist blíð. Og ástardraumar út frá henni skunda, sem örfa svein og mey til ástarfunda.27 I þessu ljóðbroti tjá myndhvörfin yfirskilvitlega samverund: sjálfið hefur sameinast þrá sinni og um leið orðið eitt með heiminum. I raun er líkt komið fyrir því og barni í frumbernsku: það sér sjálft sig líkt og í spegli í náttúrunni, náttúran hefur vaxið saman við óskir þess. I seinustu ljóðum Steingríms eru venslin með öðrum hætti. Þar hefur náttúran eins og dregist inn í sjálfa sig og útskúfað sjálfinu. Myndhvörfin lýsa sundrun frumtengsla, rofi, neikvæðu ástandi. Dæmi: Sjór er gagnsær, grilli eg niður, Gnötra eg við að sjá; Hafskip sokkið! - helgrár bryður Hákarl bleikan ná.28 Þótt vensl sjálfs og veruleika einkennist í þessu ljóði af beygblandinni fjarstæðukennd fela þau í sér merkingarríkt samtak; hin yfirskilvitlega sam- verund er enn fyrir hendi, neikvæð að vísu og kannski óorðanleg. Slík er raunin um Fuglinn: Náttúran er líkust opnu bókfelli með skrautrituðum síðum; full af teiknum og stórmerkjum. Hún er dularfullt táknkerfi, end- 357
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.