Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 108

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 108
Tímarit Máls og menningar eftir seinustu aldamót: rökleysinu sló inn, brjálsemi heimsins. Eftir hjarði sundrað sjálf, ófært um að skipa í kerfi og gefa merkingu. Jafnframt breytt- ist formsköpun skáldsögunnar eins og fram er komið. Þróunin hefur ekki verið samfelld heldur hnökrótt og með mörgum afbrigðum, myndhvörf og nafnskipti hafa leikist á og myndað margskonar vensl sín í milli. Listbrögð hafa þó tvímælalaust skipt um stöðu sem merkingarvaldar sé á heildina lit- ið. Um leið hefur samband skáldsögunnar við aðrar bókmenntagreinar breyst, skörun átt sér stað við ljóð, leik og ritgerð. Lengst hefur þessi þró- un náð í goðsögulegri myndsköpun enda einkennast nútímaskáldsögur af „afturhvarfi“ til goðsögunnar að margra áliti. En þær eru ekki einar um slíkan rithátt. Hans sjást einnig merki í verkum sem að öðru leyti eru epísk, hefðbundin. I þeim eru forn minni notuð til að undirbúa, skýra eða magna hina eiginlegu fléttu. Hlutverkið þá að vera lýsandi hliðstœda eða andstxða nútímans. I sumum þessara verka fær táknmál sem í upphafi tengdist lausn og samræmi öndverða merkingu og vísar til glötunar og samræmisleysis: Odysseifur ferst í hafi, Kristur rotnar á krossi, Guð breytist í djöful, lamb- ið í varg, lífstréð í gálga, hofið í dýflissu; og rýkur úr rústum borgar. Gott dæmi um þessa vendingu er Sœlir eru einfaldir eftir Gunnar Gunnarsson. I sögunni er hermt frá sálarstríði einstaklings sem lætur stjórnast af þrá sinni og ást framan af en bognar að lokum og gefst „djöflum“ sínum á vald, hverfur inn í heim geðsýkinnar. Oll er frásögnin studd demónsku mynd- máli: kirkjugarði og líkaböng, dimmum öngstrætum og sóttsýktum hreys- um, eldsúlu við sjóndeildarhring, djöfli í mannslíki; myndmáli sem skír- skotar til öngþveitis og dauða. Sjálfur rammi verksins felur í sér goðsögu- lega vísun því að hann er sniðinn eftir sköpunarsögu ritningarinnar: henni snúið við og greint frá eyðingu heims. Biblíuminnið er ekki aðeins skýring eða til áhersluauka heldur grundvöllur formgerðar. Annað dæmi er sagan Blakkar rúnir (1962) eftir Halldór Stefánsson þar sem lambstákninu er gefið neikvætt forteikn. Bræður berast á banaspjót fullir heiftar, og fyrir utan hús þeirra geisar náttúran. Annar gengur út og að glugga yfir rúmi bróður síns er sefur þungum drykkjusvefni, spyrnir inn um hann úldnu gimbrarhræi og ofan á vit hins sem kafnar. I textum af þessu tagi á sér stað afhelgun eða umturnun heilags táknmáls og goðsögu- minna. Slík tækni hefur einkennt mjög tilvistarlegar bókmenntir á þessari öld, t.d. fyrri verk Thors Vilhjálmssonar. Tjáð þar kennd glötunar og markleysis, mann og heim á heljarþröm. I slíkum verkum er hinu goðsögu- lega nánast snúið í andstæðu sína, upphaflegar eigindir þess horfnar. Vensl nútíma og goðsögu eru önnur í skáldsögum eins og Fuglinum. I þeim er minnið notað sem leiðarhnoða í gegnum sundraða frásögn: heim í uppnámi og án rökræns samhengis. Markmiðið er sjaldnast að endurskapa 362
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.