Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 120

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1988, Page 120
Tímarit Máls og menningar einnig hefur gert bókina „einstaka í ís- lenskum bókmenntum" (113). Bent er á þann eiginleika textans „að blanda saman háleitum hlutum og lág- kúrulegum, andlegum og líkamlegum [. . .], gera hið hátíðlegasta hlálegt og hið hlálegasta merkilegt“ (115-116). Þetta kemur ekki síst fram í spaugilegu myndmáli. I því sambandi er vísað til rússneska fræðimannsins Mikhail Bakhtin og hugtaks þess sem hann nefnir „karnívalisma“. Það er sótt til kjötkveðjuhátíðarinnar á miðöldum í kaþólskum sið, þegar fólkinu var leyft að snúa öllum hefðbundnum valdahlut- föllum á haus og gera gys að því heil- aga. Samkvæmt Bakhtin hefur þessi „hláturmenning alþýðunnar" „rutt braut endurnýjunar í lausamálsbók- menntum" (115); rit miðaldamunksins Fran^ois Rabelais sé eitt dæmi þess. Það er auðvitað ekkert beint samband milli kjötkveðjuhátíðar miðalda og bréfsins til Láru. En hugtakið karnívalismi lýsir nokkuð vel afstöðu Þórbergs. Það er margt sameiginlegt með Bréfi til Láru og Vefaranum. Sjálfhverfa og huglægni bréfritarans einkenna einnig Stein Elliða, einsog þjóðfélagsleg gagn- rýni og virðingarleysi yfirleitt gagnvart hefðbundnum sjónarmiðum. En þó að áhrif Bréfs til Láru á Vefarann séu að vissu leyti augljós, þá er verk Halldórs Laxness vafalaust langtum meiri nýj- ung, þegar um er að ræða innlimun ís- lenskra bókmennta í evrópskan menn- ingarfélagsskap upp úr heimsstyrjöld- inni fyrri. Sjóndeildarhringurinn er miklu víðari í Vefaranum. Skáldleg til- þrif eru fjölbreyttari og sýna áhrif frá ýmsum bókmenntastefnum samtímans, meðal annars súrrealismanum. Forsend- ur Vefarans eru að sækja frekar til út- landa en til Islands. Það eru ekki nema tveir síðustu meg- inkaflarnir í „Loksins, loksins“, rúmur þriðjungur textans, sem fjalla beint um Vefarann: „Vefarinn í hraðlest evrópskra bókmennta" (131-201) og „Endalok Vefarans og framhaldslíf" (203-208). Ég get ekki neitað þvi, að einmitt sá hluti bókarinnar hefur valdið mér nokkrum vonbrigðum. í mínum augum er óþarflega miklu rúmi varið handa þeim þremenningum August Strindberg, Giovanni Papini og Otto Weininger (139-160). Satt er það, þeir hafa allir hver á sinn hátt haft mikil áhrif á viðhorf og stíl Vefarans. En það er löngu útrætt mál, og hefði mátt af- greiða á færri blaðsíðum. Sá þáttur í skilgreiningu höfundar á Vefaranum, sem mér hefur þótt einna bestur er „Steinn og Diljá“ (188-198). Sjónarmiðin eru að vísu ekki ný, en margt er þar vel sagt, og þýðingu Diljár sem andstæðu Steins ágætlega lýst. „Höfundurinn hefur skapað Diljá til að leggja mælikvarða hins mannlega á of- vaxið ég-skrímsli aldamótatímans." (193) Diljá er „rétt einsog konan hjá Strindberg og Weininger klofin út úr Steini sjálfum: Hún er sú hlið hans sem hann reynir að bæla með öllum ráðum af því hún snýst gegn fullkomnunar- þránni; hún er hið jarðneska og hold- lega“. „Diljá er ekki fulltrúi neinnar stefnu, hún bara er.“ (194) Kaflinn „Form og formleysa" (195- 201) hefði gjarnan mátt vera Iengri en þessar sjö blaðsíður. Form og stíll eru sérkenni höfundar, hvað sem söguefni og innihaldi líður. Við þekkjum Hall- dór Laxness í næstum því hverri setn- ingu sem hann hefur sett á pappírinn sem fullþroskaður rithöfundur. Hér er mikið og forvitnilegt en um leið kröfu- hart verkefni, sem hefur verið lítt 374
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.