Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Qupperneq 123

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Qupperneq 123
mynd þess missis sem liggur þyngra á Einfríði: dauði bróður hennar og brott- hvarf föðurins. Fjölskyldan býr saman í húsi ömmu hennar og afa, Grandavegi 7, og þessi fjölskylda er heimur hennar, líf hennar og tilgangur þótt samlífið fari fram undir Demóklesarsverði hins hvikula föður, hins veiklunda harðstjóra sem ógnar með öryggisleysi sínu: Og svo stóð hann á fætur, horfði á okkur hvert og eitt dáhtla stund, hristi höfuðið, gekk út og við sáum hann ekki fyrr en að viku liðinni. Þá staulaðist hann upp tröppurnar, illa til reika, vesæll á svip með tárin í augunum og sagðist ekki geta verið án okkar lengur. Við yrðum að fyr- irgefa honum. Haukur dró hann þegjandi úr stígvél- unum. Mamma þvoði honum í framan. Og ég sagðist hafa saknað hans. — Það er vont að vera aumingi, hvísl- aði hann að mömmu sem þakti andlit hans með kossum (289). Vegna þess að faðirinn er elskaður af börnum sínum er óstöðugt eðli hans sífelld ógn. Það er hótun um að koma aldrei aftur, að skilja þau ein eftir, að farast og deyja. Þau óttast að hann „gleymi sér“, sofni einhversstaðar útaf og vakni aldrei aftur og þessi gleymska teygir sig yfir allt samband hans við fjöl- skylduna. 1 hvert skipti sem hann yfir- gefur hana gleymir hann í raun öllu sem hana snertir. Hann hverfur inn í heim sem börnunum er að vísu kunnur (þau heimsækja hann þegar hann er á túrum og spjalla við drykkjufélagana) en sem er utan við veggi heimilisins þar sem merking lífs þeirra að endingu situr. I hvert skipti sem faðirinn fer að heiman snýr hann í raun baki við þessari merk- ingu. Hann eyðileggur öryggið og vegna þess að hann er óútreiknanlegur, vegna þess að hann er hin jarðneska mynd guðs sem aldrei þarf að standa reikn- ingsskil á duttlungafullum ákvörðunum sínum, eru börnin sífellt að reyna að hemja hann heima við með „göldrum“. Hvarf hans er ekki hægt að skilja á rök- rænan hátt né er hægt að koma í veg fýrir það með skynsamlegum ráðum. Missir- inn er að síðustu óskiljanlegur. Þannig er faðirinn og hvarf hans um leið tákn- mynd fyrir allt það sem horfið getur. Skáldsagan spannar yfir mjög vítt svið þar sem ólíkum myndum af missi er brugðið upp en allar koma þær að síð- ustu saman í persónu föðurins. Leitin að huggun í lífinu með öðrum sem og til- gangi hinnar jarðnesku hamingju hverf- ist um grunnmynd þess sem í fyrstu kemur á traustu sambandi en brýtur það síðan og skilur hinn elskaða/barnið skilningslausan effir. „Galdrar" systkin- anna eru því mótleikur þess sem leitar að skilningi. Þeir eru ekki aðeins tilraun til að seiða föðurinn til sín heldur í raun alla hina horfnu merkingu. Lækning nieð göldrum Börnin þróa bæði með sér eigin aðferðir við þessar „helgiathafhir“. Einffíður set- ur uppbótina fýrir missi sinn sífellt á svið með því að spjalla við raddir fram- liðinna ættingja og nágranna. Skyggni hennar er stöðug tilraun til að gera heimilið og fjölskylduna aftur að heilum heimi. Jafnvel fýrsta minning hennar um þessa gáfu sína snýst um atburð þar sem missirinn leikur aðalhlutverkið. Hún sér vinnuslys. Smiður fellur niður úr stillansa og deyr. Kona hans kemur út, „beygði sig yfir manninn, hristi hann til, öskraði og grét og bað hann að skilja sig ekki eftir eina [skástr. KBJ] (50). Hinir framliðnu grípa stöðugt inn í frásögn- ina. Oft án þess að Einfríður geti sjálf stjórnað röddum þeirra. Stundum kvabba þeir í henni yfir að saga þeirra sé ekki rétt skrifuð í „spjaldskrána“ sem Skáldið vinnur að og á að mynda grunn- inn að fýrrnefndri skáldsögu hans um lífið á Grandavegi 7. Stundum gefa þeir henni heilræði eða þá að þeir reyna að sannfæra hana um að sú mynd sem hún TMM 1995:3 121
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.