Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Page 17
Gunnlaugur A. Jónsson
Inngangsorð
í tilefni af því að 23. nóvember 1996 voru liðin sjötíu ár frá fæðingu séra
Jónasar Gíslasonar, fyrrverandi prófessors við guðffæðideild Háskóla
íslands og vígslubiskups í Skálholti, ákvað ritstjórn Ritraðar Guðfræði-
stofnunar að gefa út afmælisrit honum til heiðurs. Er sr. Jónas sérlega vel
að slíkum heiðri kominn, því ekki einungis kenndi hann kirkjusögu við
guðfræðideildina í um tuttugu ára skeið heldur var jafnframt fyrsti
ritstjóri þeirrar Ritraðar sem afmælisrit hans er birt í.
Nú þegar afmælisritið loks sér dagsins ljós vil ég nota tækifærið og
þakka séra Jónasi samvinnuna, því að rit þetta hefur verið unnið í nánu
samstarfi við hann. Hafi orðið ágreiningur með okkur um hvaða efni skyldi
birta hef ég látið hann ráða ferðinni. Neita ég því ekki að ég hefði viljað sjá
meira af fræðilega unnum greinum, en séra Jónas hafði að leiðarljósi að
ritið yrði sem mest við alþýðu hæfi. Fjarri sé mér sem gömlum blaðamanni
að gera ágreining um slíkt markmið þar sem mér hefur ætíð fundist það
lofsvert þegar ffæðimenn leitast við að skrifa um ffæðileg efni á sem
auðskiljanlegastan hátt með það fyrir augum að ná til fleiri lesenda en
fræðimanna einna. Markmið séra Jónasar finnst mér því lofsvert í sjálfu
sér og mjög í stíl við það sem hann segir að hafi jafnan ráðið ferðinni í starfi
sínu, hvort sem það var innan guðffæðideildar eða sem prédikara í
kirkjunni, þ.e. viljinn til að boða Krist.
Heiti ritsins er einnig valið af sr. Jónasi, „Oss langar að sjá Jesú“ (Jóh.
12:21) og endurspeglar það grunntóninn í öllu hans starfi, þ.e. viljann til
að gera Jesú vegsamlegan og að gera okkur læs á boðskap Krists og
kristinnar kirkju, svo vitnað sé í orð dr. Páls Skúlasonar, rektors
Háskóla íslands, en hann er einn þeirra þriggja sem skrifa greinar um
sr. Jónas í afmælisritinu. Segir dr. Páll að fáum hafi hann kynnst „sem
hafa jafn hiklaust og ákveðið játað guðstrú sína og séra Jónas Gíslason.“
Dr. Hjalti Hugason prófessor, eftirmaður sr. Jónasar sem kirkju-
sögukennari við guðffæðideildina, nefnir grein sína „Gert upp við kirkju-
sögukennarann." Lýsir hann þar áhuga séra Jónasar á hagnýtri kirkju-
15