Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Blaðsíða 94
Deilur um Odda
Vestfjörðum.61 2. janúar 1537 er síra Jón staddur í Skálholti og situr í
dómi, útnefndum af Ögmundi biskupi.62
Síra Jón kemur við bréf og gjörninga allt fram til alþingis sumarið
1539.63 Þannig virðist auðsætt, að engin snurða hefur hlaupið á þráðinn
milli þeirra biskups, eftir að deilunum um Odda lauk. Er augljóst, að síra
Jón hefur verið í hópi höfuðklerka Ögmundar biskups öll þessi ár.
Til er bréf frá Gizuri Einarssyni, stílað til Jóns prests Einarssonar.64
Bréfið er ffekar efnislítið, en af því má þó ráða, að viðtakandi sé fylgjandi
siðbótinni. Það hefur verið talið, að bréf þetta muni vera ritað til síra Jóns
Einarssonar í Odda.65 Það gæti vel verið. Hitt þykir mér full eins líklegt,
að fyrrnefnt bréf sé stílað til síra Jóns Einarssonar, bróður Gizurar. En úr
því fæst sennilega aldrei skorið með fullri vissu.
Um dánarár síra Jóns er ekki vitað, en sterkar líkur má leiða að því, að
hann andist síðla árs 1539 eða a.m.k. hafi hann þá verið orðinn mjög
aldraður og lítt fær til ferða. Eftir sumarið 1539 kemur hann hvergi við
sögu, svo að vitað sé. Auðvitað nær engri átt það, sem segir í Skarðs-
árannál, að síra Jón hafi andazt í Noregi 1524.66
HEIMILDIR OG SKAMMSTAFANIR:
Björn Jónsson á Skarðsá: Annalar Biörns a Skarðsa. Sive Annales
Biörnonis de Skarðsa . . . I.-II: Hrappsey 1774-5. (Bj:Sk.Ann).
Bogi Benediktsson: Sýslumannsævir með skýringum og viðaukum eftir
Jón Pétursson og Hannes Þorsteinsson. II.-III. b. Reykjavík 1889-1908.
(BB:Sýsl.).
Diplomatarium Islandicum — Islenzkt fornbréfasafn. I. bindi og áfram.
Kaupmannahöfn og Reykjavík 1856-1972. (DI).
Diplomatarium Norvegicum. XVII ogXVIIB. bind. Christiania 1902-13
(DN).
Fionnus Johanneus: Historia Ecclesiastica Islandiæ II.-III. bindi.
Hafniæ 1774-5. (FJ:HEI).
Guðbrandur Jónsson: Herra Jón Arason. ReykjaVik 1950. (GJ:HJA).
61 DI-IX:53, 54, 58, 59.
62 DI-X:72.
63 DI-X:92, 137, 140, 158, 180.
64 DI-X:117.
65 MM-I:211-12.
66 BJ:Sk.Ann-I:95.
92