Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1997, Page 108
Orlagastund Evrópu
Og margir, jafnvel einnig kristnir menn, virðast farnir að óttast um
framtíð ríkis Krists hér í heimi, einkum í Evrópu. Bíða hennar e.t.v.
svipuð örlög og Austurlanda nær á sínum tíma?
Margir af blómlegustu söfnuðum Pásls postula voru í því landi, sem nú
nefnist Tyrkland.
Þessi fornu kristnu lönd eru nú kjarni íslamskra ríkja og einn erfíðasti
kristniboðsakur nútímans.
Bíða svipuð örlög Evrópu? Leysir Allah Krist af hólmi? Ýmsir óttast
það.
Við eigum enga tryggingu fyrir því, að kristin kirkja muni halda velli í
Evrópu.
Meðan kristnum mönnum fjölgar alls staðar annars staðar, ekki sízt í
Afríku, fækkar þeim í Evrópu. Ljósastika Guðs virðist á fórum frá okkur.
II
En þótt margt hafi breytzt í Evrópu, er eitt óbreytt: Guð er hinn sami
og áður.
„Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og um aldir!“
Kraftur Guðs er hinn sami og Heilagur Andi vinnur stöðugt verk sitt
hér á jörð.
Hvers vegna þá öll þessi umbreyting? Hvers vegna er kirkjan komin í
vörn?
Svarið er ósköp einfalt: Guð kemst ekki að með náð sína í Evrópu í dag.
Sambandsleysi er milli hans og þjóða Evrópu.
III
Hér hefur Kröfluvirkjun verið mér stórkostleg prédikun. Hún er reist á
einhverju mesta háhitasvæði heims, en þar er eldvirkni.
Fyrir nokkrum árum óttuðust menn orkuskort í landinu og töldu
sumir, að hentugast mundi að virkja þetta háhitasvæði, en það væri
áhætta, vegna eldvirkninnar.
En orkan freistaði manna og vísindamönnum var falið að kanna málið.
Þeir töldu unnt að verja svæðið hraunstraumum með varnarveggjum og
byggja mætti svo sterkt stöðvarhús, að það stæðist mestu jarðskjálfta.
Nægilegt orka var fyrir hendi og fyrstu borholurnar virtust gefa góða
raun. Flestir héldu, að Kröfluvirkjun væri lausnin.
Vísindamennirnir vildu þó fara að öllu með gát og báðu um lengri tíma
til rannsókna, en stjórnmálamenn voru óþolinmóðir og vildu hefjast
handa sem fyrst.
106