Skagfirðingabók - 01.01.1969, Blaðsíða 118
SKAGFIRÐINGABÓK
vísu. Stundum var hann þó krafinn um meira gjald. Svo var meS
dröguhestinn sem fyrr getur.
Auðvitað hefur gilið líka krafizt mannfórna, og mjög var það
kröfuhart upp úr miðri öldinni, sem leið, því að þá urðu með stuttu
millibili öll hin þrjú dauðaslys, sem um er vitað í gilinu. Mjög er
nú fyrnt yfir atburði þessa, en þeir gerðust í stórum dráttum sem
hér segir.
Árið 1858, hinn 12. desember, er húsfreyjan á Gilsbakka við kind-
ur frammi á Stigum. Þar verður hún fyrir grjóthruni, og verður það
hennar bani. Hún hét Ingibjörg Eyjólfsdóttir, 30 ára. Var hún kona
Andrésar Guðmundssonar. Var þetta á fjórða búskaparári þeirra á
Gilsbakka.
Verður nú skammt stórra högga milli, því að strax dregur til
tíðinda á næsta vetri. — Páll Jónsson, hreppstjóri og bóndi á Keldu-
landi, tekur sér ferð á hendur fram í Austurdal. Var hann að fara
í heimboð að Merkigili eða Ábæ. Samkvæmt frásögn skráðri eftit
Brynjólfi Eiríkssyni frá Skatastöðum, þá voru þeir fjórir saman.
Hinir voru Friðfinnur Friðfinnsson, síðar bóndi í Stigaseli, Guð-
mundur Guðnason, síðar bóndi í Villinganesi, og Stefán Sveinsson,
síðar bóndi á Uppsölum. Fengu þeir fylgd suður yfir gilið frá Stiga-
seli. Páll var ríðandi, hinir gangandi og höfðu mannbrodda. í baka-
leið höfðu þeir ekki fylgdarmann. Steig þá Páll af hesti sínum við
bunkann í Vegamelnum. Einhver hinna ætlaði að teyma hestinn
en Páll að styðja sig við hann, en missti hans og hrapaði niður. —
Þannig er í megindráttum sagan, skráð af Brynjólfi. Hér er litlu við
að bæta. Rétt er þó að geta þess, að aðrar sagnir segja mennina alla
ríðandi. Hafi hinir riðið yfir bunkann, en Páll ekki viljað. Einnig
hefur það verið haft fyrir satt, að þeir væru nokkuð við skál. —
Sagt er, að gamla konu í Stigaseli dreymdi, að Skotta kæmi til sín
og segði, að þær hefðu hresst sig heilasletturnar úr honum Páli.
Ennfremur, að Páll hafi aldrei viljað henda steinum í dysina sér til
fararheilla. Hafi hann talið það hjátrú eina og hindurvitni. Páll hrap-
aði 2. janúar 1860, 43 ára.
Líða nú full fjögur ár án stórra tíðinda. Aðdragandi þriðja slyss-
ins er sá, að ein vinnukonan á Merkigili er lánuð stuttan tíma á
116