Skagfirðingabók - 01.01.1969, Blaðsíða 197
HALLDÓR Á SYÐSTA-HÓLI
eftir JÓN JÓHANNESSON
Þegar ég var enn í æsku, bjó á Klóni í Hrolleifsdal bóndi,
sem Halldór hét. Kona hans hét Anna Ásmundsdóttir, og var hún
ailmiklu yngri en Halldór. Börn höfðu þau eignazt mörg, en fiest
þeirra voru þá dáin, og man ég aðeins eftir þremur á lífi: Guðnýju,
sem var elzt þeirra og hin mesta efnisstúlka og fríð sýnum, hún dó
um tvítugsaldur, og svo Sölva og Björgu, sem bæði eru enn á lífi,
þegar þetta er ritað 1947.1
Halldór var fæddur 6. febrúar 1828 og að ég hygg í Málmey,
því þar voru foreldrar hans og kynntust, áður en þau giftust.2 Faðir
hans var hinn kunni Róðhóls-Björn, Björnsson bónda á Ytra-Hvarfi
í Svarfaðardal, Guðbrandssonar, en móðir Björns var Una Guðmunds-
dóttir, systir Einars gamla á Hraunum. Guðbrandur, faðir Björns á
Hvarfi, var Þorláksson og Karítasar Sigurðardóttur skólameistara og
síðar sýslumanns í Þykkvaskógi, Vigfússonar. Róðhóls-Björn var af
samtíðarmönnum sínum talinn göldrótmr, og má um hann lesa sitt-
hvað í Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar (II, 74—80). — Kona Björns
og móðir Halldórs var Soffía Erlendsdóttir bónda á Hálsi í Flóka-
1 Halldór kvæntist Onnu hinn 24. október 1865. Hann var þá lausamaður
á Þverá í Hrolleifsdal og hún vinnukona á Róðhóli. Börn þeirra urðu fimm;
elztur var Björn, f. 1866, dáinn á þrettánda árinu; yngst var Björg, f. 1876.
(H. P.)
2 Halldór var fæddur í Málmey, en foreldrar hans giftust ekki fyrr en 6.
mai 1832, er Björn var orðinn bóndi í Róðhóli, og hafði Soffía verið bústýra
hans þar. Björn var 33 ára, þegar hann kvæntist, en Soffía ellefu árum yngri.
(H.P.)
195